22 október 2025
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Félags- og húsnæðismálaráðherra veitir styrk til starfsemi Þúfunnar
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, veitti nýverið 12 milljóna króna styrk til Lítillar þúfu, sem rekur áfangaheimilið Þúfuna (áður Dyngjan) fyrir konur sem hafa lokið meðferð vegna vímuefnanotkunar. Allt að 12 konur geta dvalið á áfangaheimilinu hverju sinni og er markmiðið að búa íbúunum gott heimili og efla með þeim sjálfsöryggi í lífi og starfi.
Hugmyndafræði Þúfunnar er heildræn og er unnið út frá áfalla- og batamiðaðri nálgun sem stuðlar að breyttum lífsstíl til að auka líkur á að rjúfa einangrun og byggja upp virkni og færni til að hefja líf upp á eigin spýtur þegar dvöl á Þúfunni er lokið.
Áfangaheimili eru sérstaklega mikilvæg fyrir konur í bataferli, sérstaklega þær sem glíma við aðrar áskoranir, svo sem bágar félagslegar aðstæður, heimilisleysi, neyslu á heimili, heimilisofbeldi eða barnaverndarmál. Á heimilinu er sérhæfður starfsmaður sem hjálpar konunum að greiða úr vandanum í samstarfi við þær stofnanir sem við á og passar að konurnar setji batann í fyrsta sæti, séu félagslega virkar og vinni að því að ná færni til að geta staðið á eigin fótum.
„Lítil Þúfa er heimili kvenna sem hafa gengið í gegnum langtímameðferð og þarfnast frekari stuðnings út í lífið á ný. Margar þessara kvenna eru mæður sem þrá ekkert heitar en að fá tækifæri til að geta tekið utan um börnin sín og ala þau upp í öryggi og ást. Þetta úrræði er eina sinnar tegundar hér á landi. Það er því afar mikilvægt að styðja við þessa starfsemi svo hún geti áfram veitt konum öruggt skjól í baráttunni við Bakkus og fíknsjúkdóma,“ segir Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir veitti styrknum viðtöku fyrir hönd Lítillar þúfu en hún segir ákaflega gleðilegt að finna velvild félagsmálaráðherra og styrkurinn komi í góðar þarfir til að hjálpa konunum á Þúfunni að skapa sér betra líf.
Styrksamkomulagið undirritað.