22 október 2025

/

Utanríkisráðuneytið

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Skrifað undir tvísköttunarsamning við Nýja-Sjáland

{image.Description}
Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra og Winston Peters, utanríkisráðherra Nýja-Sjálands, handsala samninginn að lokinni undirritun.

Tvísköttunarsamningur milli Íslands og Nýja-Sjálands var undirritaður í fjármála- og efnahagsráðuneytinu í dag. Samningurinn, sem nær til tekjuskatta, var undirritaður af Daða Má Kristóferssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, fyrir hönd Íslands og Winston Peters, utanríkisráðherra Nýja-Sjálands.  

Markmið samningsins er að koma í veg fyrir tvísköttun á atvinnurekstrartekjur, fjárfestingar, laun og aðrar tekjur sem verða til í viðskiptum milli ríkjanna og vinna gegn skattundanskotum. Með því að ryðja úr vegi skattalegum hindrunum auðveldar samningurinn starfsemi fyrirtækja og vinnu einstaklinga milli ríkjanna og hvetur til gagnkvæmra fjárfestinga. Þá jafnar samningurinn samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja og launþega á erlendum vettvangi og eykur fyrirsjáanleika þeirra í viðskiptum og störfum. 

Nýja-Sjáland er mikilvægt viðskiptaland Íslands og því hagur af því að ljúka samningi milli ríkjanna. Tvísköttunarsamningurinn er að stórum hluta í samræmi við stefnumörkun OECD sem finna má í samningsfyrirmynd stofnunarinnar.

Samningurinn er liður í stefnu íslenskra stjórnvalda um að fjölga tvísköttunarsamningum og tryggja þannig aðgang íslenskra fyrirtækja að fjármagni og vinnuafli en jafnframt gera þeim og launþegum kleift að stunda viðskipti og störf sín erlendis, án tvískattlagningar.  Á næstu mánuðum verður unnið að fullgildingu samningsins. 

Ísland og Nýja-Sjáland hafa einnig náð samkomulagi um að hefja undirbúning að samningi um vinnudvöl ungs fólks. Markmið slíkra samninga er að stuðla að auknum tengslum milli landa með því að skapa ungu fólki tækifæri til að ferðast, dvelja og starfa tímabundið í hinu landinu og kynnast þannig menningu þess og samfélagi. 

Þetta er í annað sinn sem Winston Peters, utanríkisráðherra Nýja-Sjálands, sækir Ísland heim vinnu sinnar vegna en hann kom hingað til lands árið 2019 og fundaði þá með bæði þáverandi utanríkisráðherra og ráðherra ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar.