23 október 2025

/

Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Utanríkisráðherra Nýja Sjálands fór á djúpborunarslóðir

{image.Description}
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Winston Peters utanríkisráðherra Nýja Sjálands, fá leiðsögn um Nesjavallavirkjun.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, fundaði í gær með Winston Peters, utanríkisráðherra Nýja Sjálands um jarðhitamálefni og hvernig ríkin geti tekið höndum saman um rannsóknir og þróun á sviði djúpborunar og næstu kynslóðar jarðhitanýtingar.

Fundur ráðherranna fór fram við Nesjavallavirkjun, þar sem áformað er að bora eftir ofurheitum jarðvarma strax á næsta ári samkvæmt samstarfsyfirlýsingu sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Landsvirkjun, Orkuveita Reykjavíkur og HS Orka undirrituðu í síðustu viku.

Nýja Sjáland stendur framarlega á sviði jarðhita líkt og Ísland og eiga ríkin margt sameiginlegt í orkumálum. Á fundinum ræddu ráðherrarnir og sérfræðingar úr orkugeiranum um sameiginlegar áskoranir vegna virkjunar ofurjarðhita og mögulega samstarfsfleti. Á Nýja Sjálandi er rekið verkefni Supercritical Geothermal sem hefur sömu markmið og íslenska IDDP djúpborunarverkefnið.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Winston Peters utanríkisráðherra Nýja Sjálands.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og Winston Peters, utanríkisráðherra Nýja Sjálands.

IDDP gengur út á að bora dýpra ofan í jarðhitakerfi á háhitasvæðum en áður hefur verið gert og virkja þannig varmaorku í dýpri lögum. Samstarfsyfirlýsingin sem undirrituð var í síðustu viku endurspeglar vilja íslenskra stjórnvalda og orkufyrirtækja til að flýta þróun næstu kynslóðar jarðvarmakerfa sem hluta af langtímastefnu í orkumálum og var greint frá því á Superhot Summit að ákveðið hefði verið að hefja boranir strax á næsta ári.

Jóhann Páll sagði Ísland setja markið hátt þegar kemur að frekari djúpborun og nýtingu ofurheits jarðhita og að ofurhiti geti skapað grunn að nýjum atvinnugreinum, nýsköpun og verðmætasköpun. Utanríkisráðherra Nýja Sjálands sagði stjórnvöld þar í landi vera á sömu blaðsíðu. „Stjórnvöld á Nýja-Sjálandi kanna nú möguleikana á að styðja við virkjun ofurhita á eldfjallasvæðinu í Taupō,“ sagði Winston Peters. „Virkjun jarðvarma getur hjálpað til við að tryggja orkuþörf Nýja-Sjálands í framtíðinni og því er mikilvægt að við lærum af ríkjum eins og Íslandi, sem eru leiðandi á þessu sviði.“


Ráðherrarnir funduðu um jarðhitamálefni og hvernig Ísland og Nýja Sjáland geti tekið höndum saman um rannsóknir og þróun á sviði djúpborunar og næstu kynslóðar jarðhitanýtingar.