28 október 2025
/
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Sjöunda skýrsla Ofanflóðanefndar komin út
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur gefið út skýrslu um starfsemi Ofanflóðanefndar vegna ársins 2024. Skýrslan er sú sjöunda í röðinni um starfsemi nefndarinnar frá því að hún hóf störf í ársbyrjun 1996.
Í skýrslunni má finna yfirlit um verkefni nefndarinnar á tímabilinu, fyrirliggjandi verkefni, rekstur málaflokksins og ýmsan fróðleik sem tengist vörnum gegn ofanflóðum.
Skýrsla um starfsemi Ofanflóðanefndar 2024