29 október 2025

/

Innviðaráðuneytið

Áætluð framlög vegna samþættingar í þjónustu við farsæld barna fyrir árið 2026

{image.Description}
Golli

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafanefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um áætluð framlög til að mæta kostnaði sveitarfélaga vegna samþættingar í þjónustu farsældar barna sbr. 13. gr. laga nr. 56/2025 um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Samtals eru áætluð framlög árið 2026 að fjárhæð 1.044,2 m.kr.

Úthlutun framlaganna er á grundvelli eftirfarandi breytna fyrir hvert og eitt sveitarfélag sem allar hafa jafnt vægi og byggja á upplýsingum frá Hagstofu Íslands. 

  • Fjöldi barna í hverju sveitarfélagi.
  • Fjöldi barna með stuðning í leik- og grunnskóla.
  • Fjöldi barna á lágtekjuheimilum.
  • Fjöldi barna af erlendum uppruna.

Framlögin verða enduráætluð í byrjun árs 2026 þegar uppfærð gögn berast frá Hagstofu Íslands um fjölda barna með stuðning í leik- og grunnskólum sem og fjölda barna á lágtekjuheimilum.