29 október 2025
/
Utanríkisráðuneytið
Utanríkisráðherra sótti þing Norðurlandaráðs í Stokkhólmi
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sótti í gær og í dag 77. þing Norðurlandaráðs sem fram fer í Stokkhólmi og lýkur á morgun. Í tengslum við þingið fundaði utanríkisráðherra með norrænum kollegum sínum og tók þátt í ýmsum viðburðum, enda jafnan líflegt starf þegar Norðurlandaráðsþing er haldið ár hvert.
Utanríkisráðherra var viðstödd setningu Norðurlandaráðsþingsins í gær, þriðjudag, ásamt Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra, Loga Einarssyni, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda, ásamt þingmönnum Íslandsdeildar Norðurlandaráðs. Fyrr um daginn sóttu ráðherrarnir hádegisverðarboð í sænsku konungshöllinni í boði Karls XVI. Gústafs Svíakonungs. Um kvöldið voru þau viðstödd verðlaunaafhendingu Norðurlandaráðs, en veitt voru verðlaun á sviði bókmennta, kvikmynda, tónlistar og umhverfismála. Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs hlaut að þessu sinni Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari.
Norrænu utanríkisráðherrarnir ávörpuðu allir þing Norðurlandaráðs í dag. Í innleggi sínu lagði Þorgerður Katrín áherslu á mikilvægi norræns samstarfs, samvinnu og samstöðu á viðsjárverðum tímum og ítrekaði að sjaldan hafi verið jafn mikilvægt fyrir ríki sem deila sameiginlegum gildum að standa saman vörð um mannréttindi, lýðræði og alþjóðalög.
Þorgerður Katrín fundaði einnig í dag með utanríkisráðherrum hinna Norðurlandanna og þá var haldinn sameiginlegur fundur norrænu utanríkisráðherranna með Winston Peters, utanríkisráðherra Nýja-Sjálands. Málefni Úkraínu voru í brennidepli á fundinum ásamt samskiptum Norðurlanda og Nýja-Sjálands og þróun mála í Evrópu og í Kyrrahafinu. Gáfu ráðherrarnir út sérstaka sameiginlega yfirlýsingu eftir fundinn.
Þá sátu utanríkisráðherrar Norðurlanda hádegisverðarfund með forsætisnefnd Norðurlandaráðs, þar sem rædd voru málefni Úkraínu, þróun alþjóðasamskipta og samstarf Norðurlanda við Eystrasaltsríkin. Að því loknu átti Þorgerður Katrín tvíhliða fund með Winston Peters, utanríkisráðherra Nýja-Sjálands. Peters var á Íslandi í síðustu viku og undirritaði þá, ásamt Daða Má Kristóferssyni fjármálaráðherra, tvísköttunarsamning milli ríkjanna.
„Þing Norðurlandaráðs er einstakt tækifæri til að ræða við norræna kollega um mikilvægi norræns samstarfs og hvernig við getum unnið enn betur saman til þess að takast á við sameiginlegar áskoranir,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. „Það eru því miður óvissa og átök sem setja svip sinn á alþjóðamál í dag og samstaða Norðurlanda er því dýrmætari en nokkru sinni fyrr. Hún byggir á trausti, jöfnuði og sameiginlegum gildum að leiðarljósi – og saman getum við haft raunveruleg áhrif til góðs.“