30 október 2025

/

Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Bjarni Pálsson leiðir jarðhitahóp ráðherra

{image.Description}
Bjarni Pálsson, formaður starfshóps um jarðhitavegvísi, framkvæmdastjóri vinds og jarðvarma hjá Landsvirkjun og forseti Alþjóðajarðhitasambandsins.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur sett í gang stefnumótunarvinnu um framtíð jarðhitanýtingar á Íslandi og eflingu samkeppnishæfis Íslands sem jarðhitaríkis. Bjarni Pálsson, forseti Alþjóðajarðhitasambandsins og framkvæmdastjóri vinds og jarðvarma hjá Landsvirkjun, mun leiða stefnumótunarvinnu og gegna formennsku í sérfræðingahópi sem ráðherra skipaði í vikunni.

Í hópnum sem móta  á tillögur að jarðhitavísi sitja jafnframt Auður Agla Óladóttir jarðfræðingur hjá ÍSOR, Sigurður H. Markússon leiðtogi djúpnýtingar hjá Orkuveitunni, Elena Dís Víðisdóttir verkefnastjóri hjá Orkubúi Vestfjarða, Finnur Sveinsson viðskiptastjóri sjálfbærni hjá HS orku og María Erla Marelsdóttir, sendiherra hjá Þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins.  

Hópnum er falið að móta tillögur til ráðherra sem miða m.a. að því að skapa skilyrði til aukinnar raforku- og varmavinnslu með jarðhita, ýta undir tækniþróun og tryggja að jarðhitanum sé beitt markvisst sem tæki til verðmætasköpunar og jöfnunar lífskjara og búsetuskilyrða á Íslandi. Þá mun hópurinn horfa til þess hvernig megi stuðla að öflugum grunnrannsóknum og menntun á sviði jarðvísinda og jarðhitanýtingar, viðhalda og efla leiðandi hlutverk Íslands í jarðhitamálum á alþjóðavísu, efla samstarf við önnur jarðhitaríki og styðja við útflutning þekkingar og tækni á sviði jarðhita. Hópnum er falið að skila tillögum til ráðherra fyrir 1. júní 2026.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra:

„Hvergi í heiminum leikur jarðhiti eins mikilvægt hlutverk og á Íslandi. Við höfum náð ótrúlegum árangri á sviði jarðhitanýtingar, en það sem hefur vantað sárlega er strategía og stefna, skýr áætlun fram veginn um hvernig við getum styrkt samkeppnishæfni okkar enn frekar. Ef við erum værukær og hættum að hugsa stórt eins og fyrri kynslóðir gerðu, þá glötum við forskotinu.

Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur nálgast jarðhitann sem tæki til þess að jafna lífskjör og búsetuskilyrði um allt land, en líka sem tæki til hagvaxtar og verðmætasköpunar. Þess vegna beitum við Loftslags- og orkusjóði af krafti til þess að styðja við leit og nýtingu jarðhita, þess vegna ryðjum við burt hindrunum og liðkum fyrir virkjanaframkvæmdum með laga- og reglugerðarbreytingum og þess vegna mótum við skýra framtíðarsýn um jarðhitanýtingu og samkeppnishæfni Íslands sem jarðhitaríkis. Þar njótum við liðsinnis öflugra og þrautreyndra sérfræðinga úr ólíkum áttum.“