30 október 2025

/

Innviðaráðuneytið

Samstarfsráð ríkis og sveitarfélaga kom saman

{image.Description}
Samstarfsráð ríkis og sveitarfélaga skipa þeir Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra, Jón Björn Hákonarson formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra.

Samstarfsráð ríkis og sveitarfélaga kom saman til fundar í gær og ræddi sameiginleg málefni sem tengjast stöðu og verkefnum sveitarfélaga. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra og ráðherra sveitarstjórnarmála boðaði til fundarins. Auk hans eiga fast sæti í ráðinu fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Með þeim á fundinum voru viðstaddir fulltrúar frá ráðuneytunum tveimur og Sambandinu.

Innviðaráðherra fór á fundinum yfir áherslur sínar í takt við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Nýlega hafi verið samþykkt ný heildarlög um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga sem marki tímamót í starfi sjóðsins. Framundan væru fjölmörg verkefni. Þeirra á meðal er framlagning frumvarps um víðtækar breytingar á sveitarstjórnarlögum sem hefur verið í undirbúningi um langt skeið en markmið þess er að efla sveitarstjórnarstigið í heild. Einnig er framundan þingmál um breytingar á tekjustofnum sveitarfélaga í því skyni að tryggja nærsamfélaginu sanngjarnari hlutdeild tekna vegna raforkuframleiðslu.

Ráðherra sagði mikinn vilja til þess að bæta enn frekar samskipti ríkis og sveitarfélaga. Samstarfsráðið hafi nú ekki fundað um nokkurt skeið og vilji væri fyrir að festa slíka fundi í sessi til að tryggja samskipti milli þessara tveggja grunnstoða í samfélaginu.

Á fundinum fóru einnig fram kynningar og umræður fjármál hins opinbera, fjármál sveitarfélaga og ýmis lykilsamstarfsverkefni ríkis og sveitarfélaga, þ.á m. um fjárfestingar í innviðum og málefni fatlaðs fólks. Loks var fjallað um möguleika um stafrænt samstarf ríkis og sveitarfélaga.

Í umboði samstarfsráðs ríkis og sveitarfélaga starfar samstarfsnefnd (oft kölluð Jónsmessunefnd) sem hittist mánaðarlega og hefur yfirumsjón með samstarfi ríkis og sveitarfélaga.