31 október 2025

/

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Ávarpaði hátíð þar sem listi yfir framúrskarandi fyrirtæki var birtur

{image.Description}
Daði Már sagði í ávarpi sínu að fyrirtækin væru undirstaða verðmætasköpunar.

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra flutti í gær erindi á viðburðinum Framúrskarandi fyrirtæki sem haldinn var í Laugardalshöll. Þar var birtur listi Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki 2025 og veittar viðurkenningar.

Daði Már sagði í ávarpi sínu að þrátt fyrir áskoranir sem hafi hrannast upp sé undirliggjandi staða íslensks efnahags mjög sterk. Staða margra útflutningsgreina væri sterkari og þær fjölbreyttari en nokkru sinni fyrr. Þá stæðu heimilin stæðu mjög sterkt. 

Ráðherra sagði að þrátt fyrir þetta væri ljóst að haga þyrfti seglum eftir vindi og bregðast við því sem upp kæmi. „Grundvöllurinn þar er áhersla á verðmætasköpun. Fyrirtækin eru undirstaða verðmætasköpunar í landinu og þrátt fyrir að ríkið geti veitt ákveðna þjónustu, skapað grunn og verið með regluverk sem skapar tækifæri að þá er verðmætasköpunin hjá fyrirtækjunum,“ sagði Daði Már og bætti við að um þetta væri ríkisstjórnin og hann sem fjármálaráðherra meðvitaður.

Daði Már nefndi að unnið væri að því að einfalda regluverk. Hann sagði að í fyrsta húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar væri m.a. lögð til mikil einföldun byggingarreglugerðar.

„Þessum áfanga höfum við náð sem er jákvætt og gott og kemur á góðum tíma. Það er mikilvægt að við undirbúum það núna að viðhalda framboðinu til lengri tíma. Þar eru framkvæmdir í Úlfarsárdal mikilvægar en við ætlum að gera enn betur,“ sagði Daði Már.
Stærri verkefni um einföldun regluverks væri einnig í undirbúningi í samstarfi við aðila vinnumarkaðarins, sérstaklega Samtök atvinnulífsins, um að gera hlutina með einfaldari hætti.

„Til hamingju með daginn og framúrskarandi fyrirtæki. Það er mikilvægt að hefja þau upp og að við styðjum og fögnum þeim sem gengur vel. Við þurfum fyrirmyndir í verðmætasköpuninni og því er dagur eins og þessi mikilvægur,“ sagði fjármála- og efnahagsráðherra.