31 október 2025
/
Heilbrigðisráðuneytið
Umsækjendur um embætti forstöðumanns Stafrænnar heilsu
Heilbrigðisráðuneytið birtir hér með nöfn umsækjenda um embætti forstöðumanns Stafrænnar heilsu- þróunar- og þjónustumiðstöðvar, sem auglýst var laust til umsóknar 10. október síðastliðinn. Tuttugu og fjórir sóttu um embættið.*
Stafræn heilsa – þróunar- og þjónustumiðstöð verður sett á fót í byrjun næsta árs. Starfseiningin verður hluti af heilbrigðisráðuneytinu og mun heyra undir yfirstjórn ráðuneytisstjóra. Hlutverk hennar verður að samhæfa öll stafræn verkefni í heilbrigðisþjónustu og tryggja yfirsýn. Einnig að styðja við nýsköpun og þar með aðkomu einkaaðila. Til að byrja með munu verkefni Stafrænnar heilsu lúta að innviðum sjúkraskráa, upplýsingaöryggi, stöðlum og nýsköpun. Embættið var auglýst laust til umsóknar 10. október og rann umsóknarfrestur út 27. október síðastliðinn.
Skipuð hefur verið sérstök þriggja manna hæfnisnefnd til að meta hæfni umsækjenda, á grundvelli laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, sbr. gr. 39 b. Formaður hæfnisnefndarinnar er Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir mannauðssérfræðingur hjá Auki. Aðrir nefndarmenn eru Anna María Urbancic, skrifstofustjóri í atvinnuvegaráðuneytinu og Sigrún Helga Lund, prófessor við Háskóla Íslands. Starfsmaður nefndarinnar er Fríða Björg Leifsdóttir, verkefnastjóri í heilbrigðisráðuneytinu.
Nöfn umsækjenda og starfsheiti:
Adeline Tracz, teymisstjóri
Anna Sigríður Islind, prófessor
Arnar Freyr Reynisson, framkvæmdastjóri
Árni Þorgrímur Kristjánsson, rannsóknarstofustjóri
Björg Theódórsdóttir, forstöðumaður
Borgþór Ásgeirsson, námshönnunarstjóri
Elísabet Halldórsdóttir, viðskiptafræðingur
Emil Harðarson, doktorsnemi
Erla Dögg Ragnarsdóttir, forstöðuhjúkrunarfræðingur
Freyr Hólm Ketilsson, stofnandi heilsutækniklasans
Gunnar Guðnason
Gunnar Örn Einarsson, svæðisstjóri
Harpa Hrund Albertsdóttir, sérfræðingur
Heiða Dóra Jónsdóttir, stafrænn vörustjóri
Hrafn Ingvarsson, framkvæmdastjóri
Illugi Torfason Hjaltalín, doktorsnemi
Ingi Steinar Ingason, sviðsstjóri
Jón Haukur Baldvinsson, svæðisstjóri
Katrín Hera Gústafsdóttir, gagnastjóri
Kristján Eldjárn Kristjánsson, ráðgjafi
Ólafur Aðalsteinsson, ráðgjafi
Sherry Ruth Espino Buot, þjónustufulltrúi
Sigurður Þórarinsson, tækni- og nýsköpunarstjóri
Svava María Atladóttir, sérfræðingur
*Uppfært 1. nóvember. Nafn eins umsækjanda vantaði á listann við birtingu. Umsækjendur eru því 24.