03 nóvember 2025

/

Innviðaráðuneytið

Áætlun um framlög vegna málaflokks fatlaðs fólks samkvæmt nýrri reglugerð

{image.Description}

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um fyrstu áætlun almennra framlaga sjóðsins vegna málefna fatlaðs fólks fyrir árið 2026. Áætluð framlög á árinu nema 42.270 milljónum króna og byggir áætlunin á nýrri reglugerð um úthlutun framlaganna.

Reglugerðin er sett í kjölfar nýrra heildarlaga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga sem Alþingi samþykkti í júlí sl. og með hliðsjón af samningi ríkis og sveitarfélaga um fjármögnun málaflokksins frá því í desember 2023. Með nýju regluverki eru framlög vegna barna nú greidd á grundvelli samræmds mats stuðningsþarfa líkt og framlög vegna fullorðinna notenda. Þá eru undanþágur sveitarfélaga til framlaga þar sem samræmt mat skortir þrengdar frá eldri reglugerð. Með breytingunum er samræmi og jafnræði sveitarfélaganna til framlaganna tryggt betur en áður hefur verið og verklag um framlögin skýrt betur. Reglugerðin hefur verið í vinnslu um nokkurt skeið og fóru drög að henni í samráðsgátt stjórnvalda í september 2024.

Að baki áætluninni eru 1.561 notandi (1.359 fullorðnir og 202 börn) í 25 sveitarfélögum eða þjónustusvæðum um málefni fatlaðs fólks. Líkt og áður ræðst heildarfjárhæð framlaga vegna málaflokksins af fastri 1,44% hlutdeild í útsvarsstofni og 0,235% skatttekna ríkissjóðs. Stærsti hluti þeirra rennur í almenn framlög sem skiptast á grundvelli:

  • Samræmdrar stuðningsþarfar notenda (88%)
  • Útsvarsstofns sveitarfélaga (10,75%)
  • Innviða, s.s. fjarlægða innan þjónustusvæða (1,25%)

Þessi fyrsta áætlun verður grundvöllur greiðslna sjóðsins fram að næstu áætlun. Framlögin eru greidd mánaðarlega til sveitarfélaga og fer fyrsta greiðsla ársins 2026 fram í lok febrúar nk.