03 nóvember 2025
/
Utanríkisráðuneytið
Framkvæmdastjóri Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna í vinnuheimsókn
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra átti í dag fund með Filippo Grandi, framkvæmdastjóra Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR), en hann er í vinnuheimsókn á Íslandi. Þau ræddu á fundi sínum um þær stóru áskoranir sem við blasa á heimsvísu í flóttamannamálum, samstarf Íslands og Flóttamannastofnunarinnar og um málefni Sameinuðu þjóðanna í víðu samhengi á umbrotatímum.
Grandi hefur setið í embætti framkvæmdastjóra UNHCR frá árinu 2016 og á að baki langan feril hjá Sameinuðu þjóðunum. „Við áttum einstaklega gott samtal, nú eins og á fyrri fundi okkar úti í Genf í sumar,“ sagði Þorgerður Katrín. „Það hefur lengi verið útistandandi boð til Íslands til handa Grandi og það er því gleðilegt að hann skuli nú hafa getað heimsótt okkur. Ég tel mikilvægt að við sem þjóð eigum þetta samtal við Grandi og við stofnunina sem hann stýrir því að upplýst umræða um bæði þær áskoranir og þau tækifæri sem fylgja fólksflutningum og flóttafólki er eins mikilvæg hér á landi og í stærri ríkjum. Við ræddum meðal annars það hræðilega ástand sem nú ríkir í Súdan, sem og í Afganistan og í Mið-Austurlöndum. Þar verður alþjóðasamfélagið að taka hlutverki sínu við að standa vörð um frið og mannréttindi alvarlega. Grandi er mjög reynslumikill og þekking hans og innsýn því mikil. Sameinuðu þjóðirnar sem slíkar og framtíð þeirra komu líka til tals. Þó að það megi alveg hugsa sér umbætur og endurnýjun á Sameinuðu þjóðunum þá deilum við þeirri sýn að það skipti sköpum að það takist að standa vörð um stofnunina og þá hugsjón sem býr henni að baki.“
Grandi fundaði einnig í dag með dómsmálaráðherra og með utanríkismálanefnd Alþingis og hann fór líka í kurteisisheimsókn á Bessastaði til forseta Íslands. Þá hitti hann hóp fólks sem fengið hefur hæli á Íslandi. Í kvöld situr hann svo kvöldverð í boði utanríkisráðherra. Á morgun stendur til að Grandi eigi fund með forsætisráðherra og jafnframt með Félagi Sameinuðu þjóðanna og ýmsum félagasamtökum.