03 nóvember 2025
/
Atvinnuvegaráðuneytið
Niðurstöður tilboðsmarkaðar fyrir greiðslumark mjólkur
Markaður með greiðslumark í mjólk var haldinn þann 3. nóvember. Atvinnuvegaráðuneytinu bárust 38 gild tilboð um kaup og sölutilboð voru 12.
Tilboð voru send með rafrænum hætti í gegnum Afurð og liggur niðurstaða markaðarins nú fyrir.
Í gildi er ákvörðun ráðherra um að hámarksverð skuli vera þrefalt afurðastöðvaverð, sem við lok tilboðsfrests var 423 kr. fyrir hvern lítra. Við opnun tilboða kom fram jafnvægisverðið 250 kr./ltr.
- Fjöldi gildra tilboða um sölu á greiðslumarki mjólkur voru 13.
- Fjöldi gildra tilboða um kaup voru 38.
- Fjöldi kauptilboða undir jafnvægisverði var 3.
- Fjöldi sölutilboða yfir jafnvægisverði var 2.
- Greiðslumark sem boðið var fram (sölutilboð) voru alls 866.812 lítrar
- Greiðslumark sem óskað var eftir (kauptilboð) voru 1.217.100 lítrar
- Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða (jafnvægismagn) voru 613.339 lítrar að andvirði 153.334.750,- kr.
- Seljendur með tilboð á jafnvægisverði eða lægra eru 11 talsins og selja 100% af sínu framboðna magni.
- Kaupendur með tilboð á jafnvægisverði eða hærra eru 35 talsins og fá 52% af eftirspurðu magni í sinn hlut.
- Af kauptilboðum fær eitt tilboð úthlutun úr forgangspotti nýliða.
Sala greiðslumarks fer nú fram samkvæmt gildum tilboðum. Atvinnuvegaráðuneytið mun senda öllum tilboðsgjöfum upplýsingar um afgreiðslu tilboða og gera breytingar á skráningu greiðslumarks þegar uppgjör hefur farið fram. Upplýsingar um greiðslumark sitt geta bændur nálgast í Afurð.