03 nóvember 2025
/
Dómsmálaráðuneytið
Ráðherra heimsótti lögregluna á Suðurnesjum
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra heimsótti á dögunum lögregluna á Suðurnesjum þar sem hún kynnti sér starfsemi embættisins og nýtt komu- og brottfararkerfi Schengen-svæðisins (Entry/Exit System – EES).
Á fundi með fulltrúum embættisins var fjallað um stöðu mála í tengslum við uppbyggingu og rekstur landamæraeftirlits og áhrif innleiðingar kerfisins á daglega starfsemi. Nýja kerfið mun skrá rafrænt komur og brottfarir ríkisborgara þriðju ríkja yfir ytri landamæri Schengen-svæðisins og er ætlað að styrkja öryggi, bæta eftirlit og gera ferla skilvirkari.
Innleitt samtímis í öllum Schengen-ríkjum
Innleiðing á kerfinu hófst þann 12. október og fór fram samtímis í öllum Schengen-ríkjum, að Kýpur undanskildu. Annar fasi innleiðingarinnar hefst svo í næstu viku en gert er ráð fyrir því að kerfið verði að fullu tekið í notkun á öllum ytri landamærum Schengen-ríkjanna í lok mars 2026.
Margrét Kristín Pálsdóttir settur lögreglustjóri á Suðurnesjum og Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra
„Alþjóðlegt lögreglusamstarf er gríðarlega mikilvægt í baráttunni við skipulagða glæpastarfsemi. Með þessu nýja kerfi taka Schengen ríkin mikilvægt skref í átt að öruggari landamærum,“ sagði dómsmálaráðherra að heimsókn lokinni.