03 nóvember 2025

/

Utanríkisráðuneytið

Um hundrað lokið námskeiði í öryggis- og varnarmálum

{image.Description}
Hópurinn sem lauk námskeiðinu í síðustu viku.

Nú hafa hátt í hundrað sótt reglubundið námskeið varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins um öryggis og varnarmál, en fimmti hópurinn lauk því í síðustu viku. Um er að ræða námskeið sem haldið er tvisvar á ári í samstarfi við skrifstofu almanna- og réttaröryggis í dómsmálaráðuneytinu.

Þátttakendur koma frá ráðuneytunum, stofnunum, háskólum, fyrirtækjum, fjölmiðlum og félagasamtökum sem tengjast öryggis- og varnarmálum með einum eða öðrum hætti. 

„Það hefur sjaldan verið brýnna að auka þekkingu og umræðu um öryggis- og varnarmál á breiðum grunni, bæði innan stjórnsýslunnar sem og í samfélaginu öllu. Þessi námskeið okkar hafa gefið góða raun og nýtast þátttakendunum til að öðlast frekari skilning og innsýn í málaflokkinn, sem er svo mikilvægt,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.

Fjölmargir sérfræðingar utanríkisráðuneytisins koma að skipulagi og fræðslu á námskeiðinu sem veitir þátttakendum fágæta innsýn í stefnumál, skipulag og framkvæmd öryggis- og varnarmála auk þess sem farið er í venjubundnar skoðunarferðir um öryggissvæðið í Keflavík og í heimsókn til embættis ríkislögreglustjóra og Landhelgisgæslunnar.