04 nóvember 2025
/
Dómsmálaráðuneytið
Dómsmálaráðherra fundaði með aðalframkvæmdastjóra Flóttmannastofnunar Sameinuðu þjóðanna
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra fundaði í gær með Filippo Grandi, aðalframkvæmdastjóra Flóttamannastofnunar Sameinuðu Þjóðanna (UNHCR). Á fundinum var rætt um samstarf Íslands og Flóttamannastofnunarinnar í tengslum við málefni fólks á flótta, skautun í pólítískri umræðu um útlendingamál og aðgerðir stjórnvalda til að ná fram árangri í aðlögun flóttafólks.
Ráðherra lagði áherslu á að UNHCR væri einn mikilvægasti samstarfsaðili Íslands á sviði málefna fólks á flótta og þakkaði fyrir gott samstarf í gegnum árin.
„Flóttamannastofnunin hefur gegnt lykilhlutverki í að efla getu íslenskra stjórnvalda á þessu sviði. Við höfum fengið faglegan stuðning, þátttöku í fræðslustarfsemi og uppbyggingu sem hefur styrkt stjórnsýsluna og stuðlað að samræmdum aðgerðum,“ sagði Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.
Stjórnvöld setji sér markmið um móttöku kvótaflóttafólks
Á fundinum lagði Filippo Grandi áherslu á mikilvægi þess að stjórnvöld setji sér skýr framtíðarmarkmið um móttöku kvótaflóttafólks. Ráðherra fór yfir að hún hafi nýverið tekið við ábyrgð á málaflokknum og að unnið sé að því að einfalda og efla stjórnsýslu, svo móttaka kvótaflóttafólks verði gagnsæ og skilvirk.
Staða fólks frá Úkraínu
Þá var sérstaklega fjallað um stöðu fólks frá Úkraínu. Ráðherra greindi frá því að Ísland hafi framlengt tímabundna vernd fyrir úkraínska ríkisborgara til mars 2027 og að stjórnvöld leggi áherslu á að fylgja eftir mannúðlegum og sjálfbærum lausnum í samræmi við stefnu nágrannaríkja.
Einnig var rætt hvernig stjórnvöld gætu fundið jafnvægi milli þess að mæta þörfum Úkraínumanna sem búsettir eru hér á landi en á sama tíma komið á móts við þarfir Úkraínu við að fá fólkið sitt heim að stríði loknu.