06 nóvember 2025
/
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Innviðaráðuneytið
Íslensku menntaverðlaunin 2025
Íslensku menntaverðlaunin 2025 voru veitt við hátíðlega athöfn á Bessastöðum 4. nóvember. Verðlaunin eru veitt í fimm flokkum; fyrir framúrskarandi skóla- eða menntaumbótastarf, kennslu, þróunarverkefni, iðn- og verkmenntun, auk sérstakra hvatningarverðlauna.
Markmið verðlaunanna er að vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og unglingum. Að auki er veitt hvatning til einstaklings, hóps eða samtaka sem stuðlað hafa að menntaumbótum er þykja skara fram úr. Verðlaunin ná til leik-, grunn- og framhaldsskólastigs, sem og til listnáms og félags- og tómstundastarfs.
A. Framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur
Verðlaunin í ár fær Skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar fyrir afar metnaðarfullt og árangursríkt starf. Markmið skólahljómsveitarinnar er að búa til vettvang fyrir börn með áhuga á tónlist til að vinna saman að tónlistarsköpun og tónlistarflutningi.
Árangur hljómsveitarinnar þykir einstakur. Hún hefur komið fram í sýningum í Borgarleikhúsinu, með Íslenska dansflokknum, á Myrkum músíkdögum, í sjónvarpi, á fjölmörgum hljómleikum og við ýmsa viðburði, auk þess að heimsækja dvalarheimili aldraðra, svo fátt eitt sé nefnt. Síðustu ár hefur hátt hlutfall nemenda í hljómsveitinni haldið áfram tónlistarnámi.
B. Framúrskarandi kennari
Örvar Rafn Hlíðdal, íþróttakennari við Flóaskóla, fær verðlaunin fyrir framúrskarandi íþróttakennslu og árangur í starfi.
Örvar Rafn þykir einstaklega laginn við að ná til allra nemenda. Hann leggur áherslu á hollustu og heilbrigða lífshætti og sýnir nemendum í verki hversu mikils virði það er að að leggja sig fram fyrir hópinn og láta aldrei sitt eftir liggja við að aðstoða og hjálpa öðrum að ná markmiðum sínum. Í einni af umsögnunum þar sem mælt var með tilnefningu hans segir: Skiptir þá ekki máli hvort um er að ræða lítið vatnshrætt kríli sem þarf að hvetja og styðja til að taka fyrstu sundtökin eða hvort um ræðir öflugan ungling sem stundar íþróttir af kappi og þarf að hvetja til dáða.
Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, afhendir Örvari Rafni viðurkenningu sem framúrskarandi kennari/Mynd: Mummi Lú
Flóaskóli hefur undir leiðsögn Örvars tekið þátt í Skólahreysti undanfarin ár. Þótt skólinn sé fámennur, hafa keppnislið skólans náð inn í úrslit ár eftir ár. Frá 2021 hefur skólinn tvisvar lent í þriðja sæti úrslitakeppninnar og tvisvar unnið keppnina.
C. Framúrskarandi þróunarverkefni
Verðlaunin fær verkefnið Lítil skref á leið til læsis, samstarfsverkefni leikskólans Grænuvalla og Borgarhólsskóla á Húsavík um málörvun og læsi.
Verkefnið beinist annars vegar að auknu samráði kennara á báðum stigum um að efla málþroska og læsi og hins vegar að öflugri foreldrafræðslu til að styrkja samstarf skóla og heimila.
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra veitir (frá vinstri) Kolbrúnu Ödu Gunnarsdóttur, deildarstjóra við Borgarhólsskóla, Sigríði Valdísi Snæbjörnsdóttur leikskólastjóra Grænuvalla og Þórgunni Reykjalín Vigfúsdóttur skólastjóra Borgarhólsskóla viðurkenningu fyrir framúrskarandi þróunarverkefni/Mynd: Mummi Lú
Áhugaverður þáttur í verkefninu er aðkoma sjúkraþjálfara, sem hefur kannað fínhreyfingar barnanna og síðan hafa þau börn sem á þurfa að halda fengið markvissa þjálfun. Afurð verkefnisins verður leiðarvísir sem kennarar geta nýtt sem ramma eða kveikju fyrir hliðstæð verkefni og þar verður að finna hugmyndir um hvernig hægt er að vinna faglega að því að efla samstarf á mörkum skólastiga með aðkomu kennara, foreldra og barna.
D. Framúrskarandi iðn- eða verkmenntun
Verðlaun fyrir framúrskarandi framlag til iðn- eða verkmenntunar koma í hlut Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum sem hefur á undanförnum árum markað sér sterka stöðu í kennslu málm- og vélstjórnargreina. Sérstaða námsins felst í því hvernig tekist hefur að umbreyta hefðbundnu námi í verkefnamiðað og atvinnulífstengt ferli þar sem nemendur vinna raunhæf verkefni sem endurspegla aðstæður í atvinnulífinu.
Helga Kristín Kolbeins skólameistari tekur við verðlaunum fyrir hönd Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum, Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins afhenti verðlaunin/Mynd: Mummi Lú
Í litlu samfélagi, þar sem sjávarútvegur og iðnaður eru lífæð byggðarinnar, hefur skólinn þróað námsumhverfi í samstarfi við atvinnulífið sem er í fremstu röð á landsvísu.
E. Hvatningarverðlaun
Hvatningarverðlaun fær starfsfólk Háaleitisskóla í Reykjanesbæ. Í skólanum eru sjö af hverjum tíu nemendum af erlendum uppruna og í skólanum eru töluð um 30 tungumál. Í Háaleitisskóla hefur tekist að skapa einstaklega jákvæða skólamenningu, m.a. með því að líta á fjölmenninguna sem styrk skólans.
Félagsmiðstöð er opin í frímínútum og hádegi, þar er opið svokallað vellíðunarver sem styður nemendur sem þurfa stuðning og nemendur, sem á þurfa að halda, geta sótt sér aðstoð til sérstaks nemendaráðgjafa. Þá hefur mikil rækt verið lögð á samstarf við foreldra og að styðja þá við að setja sig inn í og skilja íslenskt skólakerfi.
Unnar Stefán Sigurðsson skólastjóri tekur við hvatningarverðlaunum fyrir hönd starfsfólks Háaleitisskóla frá Guðfinnu S. Bjarnadóttur formanni viðurkenningaráðs/Mynd: Mummi Lú
Að menntaverðlaununum standa embætti forseta Íslands, mennta- og barnamálaráðuneytið, innviðaráðuneytið, Félag um menntarannsóknir, Grunnur – félag fræðslustjóra og stjórnenda skólaskrifstofa, Kennaradeild Háskólans á Akureyri, Kennarasamband Íslands, Listaháskóli Íslands, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, Menntavísindasvið Háskóla Íslands, Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök áhugafólks um skólaþróun, Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar og Samtök iðnaðarins.
Mennta- og barnamálaráðuneytið, innviðaráðuneytið og Samtök iðnaðarins fjármagna verkefnið.
Athygli er vakin á því að þegar er hægt að senda inn tillögur að tilnefningum fyrir næsta ár, sjá á www.skólaþróun.is þar sem einnig er að finna nánari upplýsingar um verðlaunahafa og tilnefningar.