06 nóvember 2025

/

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Ráðherrar stafrænna mála Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna funduðu í Finnlandi

{image.Description}
Ljósmyndari Laura Happo / Tampereborg
Frá fundi ráðherranna í Tampere.

Ráðherranefnd stafrænna mála, MR-DIGITAL, undir hatti norrænu ráðherranefndarinnar, fundaði þann 6. nóvember í Tampere í Finnlandi. Fjármála- og efnahagsráðherra er fulltrúi Íslands í nefndinni og tók þátt í fundinum í gegnum fjarfund.

Áhersla á innleiðingu evrópsks auðkennaveskis (EU Digital Identity Wallet)

Á fundinum var samþykkt sameiginleg yfirlýsing ráðherra stafrænna mála í ríkjunum um mikilvægi innleiðingar stafræns auðkennaveskis (EU Digital Identity Wallet). Stafræn auðkennaveski eru mikilvægur þáttur í áframhaldandi stafvæðingu ríkjanna. Í yfirlýsingunni segir m.a. að löndin hyggist styðja við uppbyggingu undirstöðuþátta sem gera innleiðingu veskislausna mögulega, stuðla að samræmdum tæknilegum kröfum og að Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin verði leiðandi á sviði öruggrar auðkenningar og gagnkvæmrar samvirkni milli landa.

Öll löndin hafa verið þátttakendur í prufuverkefnum um evrópskt auðkennaveski. Ísland var hluti af NOBID Consortium verkefninu sem lauk í ágúst sl. 

Aukið samstarf þjóðskráa landanna undanfari notkunar rafrænna skilríkja yfir landamæri

Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin halda áfram að vinna saman að tæknilegum innviðum fyrir íbúa til að nota eigin rafræn skilríki til auðkenningar í öðrum löndum. Það samstarf byggir m.a. á tveimur fyrri yfirlýsingum, annars vegar yfirlýsingu ráðherra stafrænna mála frá 2023 og hins vegar yfirlýsingu forsætisráðherra Norðurlandanna frá 2024.

Ríkin eru leiðandi á heimsvísu á sviði opinberrar, stafrænnar þjónustu og hafa einsett sér að viðhalda þeirri stöðu og sækja enn frekar fram. Notkun rafrænna skilríkja er afar útbreidd á svæðinu og næsta eðlilega skref er að auka möguleika til að nýta þau þvert á landamæri ríkjanna.