06 nóvember 2025
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Ræddi húsnæðismál við norræna ráðherra
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, sótti í gær norrænan ráðherrafund um húsnæðismál sem fram fór í Helsinki í Finnlandi. Ráðherrarnir ræddu meðal annars um þau áhrif sem skortur á húsnæði á viðráðanlegu verði hefur og um væntanlega samevrópska húsnæðisstefnu, hvaða skref sé vænlegt að stíga á samevrópskum vettvangi og hvað leysist best í einstaka ríkjum.
Ráðherrarnir ræddu einnig um þá miklu aukningu sem orðið hefur í skammtímaleigu húsnæðis og þau áhrif sem það hefur á innlendan húsnæðismarkað. Jafnframt var rætt um þær leiðir sem ríkin eru að fara til að takast á við þessa áskorun.
„Á fundinum ræddum við um húsnæðis- og mannvirkjamál Norðurlandanna. Við komumst að sameiginlegri niðurstöðu um þörfina á því að halda áfram að vinna að húsnæðis- og mannvirkjamálum á vettvangi norræns samstarf, og jafnframt vorum við sammála um mikilvægi þess að hvert ríki hafi forráð yfir sínum húsnæðismálum og að haga þyrfti hagsmunavörslu gagnvart ESB eftir þeim formerkjum. Ég kynnti fyrir kollegum mínum húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar og kynnti mér helstu vendingar á sviði húsnæðismála á hinum Norðurlöndunum,“ segir Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra.
Afhendingaröryggi og norrænar byggingarreglugerðir
Fleira var á dagskrá fundarins og má þar nefna afhendingaröryggi byggingarvöru í tengslum við hamfarir vegna loftslagsbreytinga og hættu á stríðsátökum. Á Íslandi er nánast öll byggingarvara innflutt og málið því sérstaklega mikilvægt fyrir Íslendinga.
Á fundinum var einnig fjallað um samræmingu norrænna byggingarreglugerða og rætt um nýtt sjálfbærniverkefni í byggingariðnaði sem norrænu ríkin hafa tekið höndum saman um. Ísland mun leiða þann hluta verkefnisins sem snýr að lífsferilsgreiningu mannvirkja.