06 nóvember 2025

/

Forsætisráðuneytið

Þarf að uppfæra embættismannakerfið?

{image.Description}

Forsætisráðuneytið býður til málþings þriðjudaginn 11. nóvember nk. kl. 13−16 undir yfirskriftinni Þarf að uppfæra embættismannakerfið? Þar verður fjallað um skýrslu og tillögur starfshóps um hlutverk og starfsskilyrði embættismanna. Málþingið fer fram á Hilton Reykjavík Nordica.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra mun flytja opnunarávarp og þrír erlendir sérfræðingar halda erindi í fyrri hluta málþingsins sem verður á ensku. Í seinni hlutanum, sem verður á íslensku, munu fulltrúar starfshópsins kynna tillögur hans og helstu niðurstöður en málþinginu lýkur á pallborðsumræðum.

Málþingið er öllum opið og er þátttakendum að kostnaðarlausu. Um er að ræða annað málþingið sem er haldið í tengslum við vinnu starfshópsins en forsætisráðuneytið og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála héldu málþing í mars 2023 undir yfirskriftinni Embættismaðurinn í nútímasamfélagi.

Skráning á málþingið

Dagskrá málþingsins:

Kl. 13:00 Opnun
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra

Hæfni stjórnsýslunnar til að takast á við nútímaáskoranir
Daniel Gerson, yfirmaður málefna opinbers vinnumarkaðar og opinberrar stjórnunar hjá OECD

Reynslan af sérstakri ráðherranefnd um málefni embættismanna
Bo Smith, fyrrverandi ráðuneytisstjóri í Danmörku

Miðlæg skrifstofa um málefni embættismanna
Sonja Hamhuis, sérfræðingur, embættismannadeildinni í innanríkisráðuneyti Hollands

Kl. 14:30 Kaffihlé

Kl. 14:45

Kynning á tillögum í embættismannaskýrslunni
Páll Þórhallsson, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu

Niðurstöður rannsóknar á reynslu ráðherra og ráðuneytisstjóra
Dr. Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands

Pallborð

  • Eygló Harðardóttir, verkefnisstjóri afbrotavarna hjá ríkislögreglustjóra, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra
  • Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra
  • Páll Þórhallsson, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu
  • Sigríður Kristinsdóttir, sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu og formaður Félags forstöðumanna ríkisstofnana
  • Dr. Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands

Fundarstjóri: Ólafur Þ. Harðarson