06 nóvember 2025

/

Utanríkisráðuneytið

Varnarmálaráðherrafundur sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (JEF) í Bodø

{image.Description}
Varnarmálaráðuneyti Noregs
Af fundi varnarmálaráðherra JEF-ríkjanna.

Varnarmálaráðherrar og aðrir fulltrúar sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (JEF) funduðu í Bodø, Noregi dagana 4.-5. nóvember. Bretar leiða starf sveitarinnar, sem Norðurlöndin, Eystrasaltsríkin og Holland eiga einnig aðild að. Á fundinum var rætt um aukið varnarsamstarf, sameiginlegan varnarviðbúnað ríkjanna, stuðning og samstarfið við Úkraínu, og frekari þróun samstarfsvettvangsins í breyttu öryggisumhverfi þar sem áhersla er lögð á viðbúnað á Norður-Atlantshafinu, norðurslóðum og Eystrasaltinu. 

Á fundinum var undirritað uppfært samkomulag um starf sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (e. Comprehensive Memorandum of Understanding, CMoU) sem endurspeglar breyttar forsendur í öryggismálum eftir inngöngu Finnlands og Svíþjóðar í Atlantshafsbandalagið. Öll ríki JEF eru nú aðildarríki Atlantshafsbandalagsins og styrkir það til muna getu sveitarinnar til þess að styðja við verkefni og markmið bandalagsins.

Í uppfærða textanum er m.a. kveðið á um heimild til að stofna til aukins samstarfs (e. Enhanced Partnership) við önnur ríki. Í maí á þessu ári samþykktu leiðtogar JEF-ríkjanna að bjóða Úkraínumönnum til slíks samstarfs og af því tilefni tók Denys Sjmyhal, varnarmálaráðherra Úkraínu, þátt í fundinum. Hann fór yfir stöðuna á vígvellinum og mikilvægi stuðnings  við varnarbaráttu Úkraínumanna. Þá var einnig rætt um frekari samstarf við Úkraínu, þar á meðal nýtt þjálfunarverkefni Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna fyrir úkraínska hermenn í suðaustur Póllandi .  


Þetta er í fyrsta skipti sem sveitin fundar á norðurslóðum og er það vitnisburður um vilja ríkjanna til að leggja sitt af mörkum til öryggismála á svæðinu.


Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, sótti fundinn fyrir hönd utanríkisráðherra.