07 nóvember 2025
/
Atvinnuvegaráðuneytið
Íslensk útgáfa af viðmiðunarreglum OECD um ábyrga viðskiptahætti
Á uppfærðri heimasíðu atvinnuvegaráðuneytisins um ábyrga viðskiptahætti má nú finna íslenska þýðingu á uppfærðum viðmiðunarreglum Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) fyrir fjölþjóðleg fyrirtæki um ábyrga viðskiptahætti.
Viðmiðunarreglurnar eru sameiginleg tilmæli aðildarríkja OECD til fjölþjóðlegra fyrirtækja um að stuðla að sjálfbærri þróun og taka á skaðlegum áhrifum sem tengjast atvinnustarfsemi, vörum eða þjónustu þeirra. Með endurskoðun á viðmiðunarreglunum árið 2023 voru m.a. tekin inn ákvæði sem tengjast loftslagsbreytingum, líffræðilegri fjölbreytni, áreiðanleikakönnunum og gagnsæi.
Á síðunni má einnig finna upplýsingar tengilið Íslands fyrir ábyrga viðskiptahætti (National Contact Point), verklagsreglur vegna mála sem upp geta komið, kynningarefni, og skýrslur til OECD.
Vefurinn er bæði á íslensku og ensku, er notendavænni en áður og byggður upp í samræmi við alþjóðleg viðmið um gagnsæi og aðgengi að upplýsingum.
Með þessari uppfærslu er aukin áhersla lögð á fræðslu og aðgengi að viðmiðunarreglum OECD. Reglurnar eru mikilvægt leiðarljós fyrir fyrirtæki sem vilja starfa með ábyrgum hætti og stuðla að sjálfbærni í viðskiptum og samfélaginu.
Samhliða þessu hefur farið fram alþjóðleg úttekt á starfsemi íslenska tengiliðarins (NCP) innan OECD og hefur Ísland uppfyllt þær tillögur um umbætur sem lagðar voru til. Þar á meðal eru efling stýrihóps um ábyrga viðskiptahætti, samþykktar starfsreglur stýrihópsins og aukin samvinna milli ráðuneyta og haghafa á sviði ábyrgra viðskiptahátta.
Vefsíða um ábyrga viðskiptahætti.
Íslensk útgáfa viðmiðunarreglna OECD um ábyrga viðskiptahætti.