07 nóvember 2025

/

Utanríkisráðuneytið

Mælt fyrir stefnu í varnar- og öryggismálum

{image.Description}
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra í umræðum á Alþingi í gær.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra mælti í gær á Alþingi fyrir þingsályktunartillögu um stefnu í varnar- og öryggismálum. Um er að ræða fyrstu formlegu stefnu í varnarmálum og byggist hún á tillögum samráðshóps þingmanna sem skipaður var í mars til að fjalla um inntak og áherslur stefnu í varnar- og öryggismálum. 


Í þingsályktuninni er fjallað um öryggisumhverfið og þær áskoranir sem Ísland stendur frammi fyrir, til lengri og skemmri tíma, með áherslu á ytri ógnir af mannavöldum – hernaðarlega áhættuþætti. Settar eru fram þrettán megináherslur stefnu í varnar- og öryggismálum. 


Í stefnunni er áréttað að meginstoðir varna Íslands eru annars vegar aðildin að Atlantshafsbandalaginu og hins vegar varnarsamningurinn frá 1951 við Bandaríkin. Svæðisbundið og tvíhliða samstarf við nágrannaríki og lykilbandamenn innan Atlantshafsbandalagsins styður við og styrkir þessar tvær stoðir. Fjallað er um eflingu innlendrar getu og viðbúnaðar og að nauðsynlegt sé að tryggja að á Íslandi sé til staðar mannauður, áætlanir, innviðir og búnaður til að mæta öryggisáskorunum og standa við alþjóðlegar skuldbindingar Íslands. 


„Við erum á tímum mikillar óvissu í alþjóðamálum og öryggisumhverfi Íslands hefur versnað hratt á síðustu árum. Ísland þarf líkt og önnur ríki Evrópu að  horfast í augu við þennan veruleika grípa til aðgerða til að standa vörð um öryggi þjóðarinnar og sameiginlegar varnir aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins. Í því felst að treysta öryggi, varnir og áfallaþol íslensks samfélags. Stefnan er mótuð í breiðri pólitískri sátt sem skiptir miklu máli þegar öryggi og varnir þjóðarinnar eru undir. Ég fagna þeirri upplýstu og góðu umræðu sem var um stefnuna í þinginu í dag. Hún einkenndist af framsýni og samstöðu sem er verðmætt veganesti fyrir næstu skref þessarar vinnu,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra.