07 nóvember 2025
/
Utanríkisráðuneytið
Samkomulag við Kýpur undirritað vegna Uppbyggingarsjóðs EES
Bryndís Kjartansdóttir, sendiherra Íslands gagnvart Kýpur, undirritaði í gær, 6. nóvember 2025, samkomulag um nýtt framkvæmdatímabil Uppbyggingarsjóðs EES 2021-2028 milli Íslands, Liechtenstein og Noregs annars vegar og Kýpur hins vegar.
Markmið Uppbyggingarsjóðsins er að styrkja félagslega og efnahagslega samheldni innan Evrópu og efla tvíhliða tengsl milli gjafaríkjanna - Íslands, Liechtenstein og Noregs - og þeirra fimmtán aðildarríkja Evrópusambandsins sem njóta stuðningsins. Með undirritun samkomulagsins hefst nú undirbúningur úthlutana úr sjóðnum í Kýpur fyrir nýja tímabilið.
Samstarf Íslands og Kýpur á vettvangi Uppbyggingarsjóðsins byggir á traustum grunni sem lagður var á fyrri sjóðstímabilum.
Á mynd má sjá Bryndísi Kjartansdóttur, sendiherra Íslands gagnvart Kýpur, Astrid Bergmål, varautanríkisráðherra Noregs, og Makis Kervanos, fjármálaraðherra Kýpur. Mynd fengin frá Uppbyggingarsjóði EES.