09 nóvember 2025

/

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Heilbrigðisráðuneytið

Allir með: Áframhaldandi stuðningur við verkefni sem eykur þátttöku fatlaðra barna og ungmenna í íþróttastarfi

{image.Description}
Myndir: UMFÍ.
Ráðherrarnir Inga Sæland, Alma Möller og Guðmundur Ingi Kristinsson ætla að veita 60 milljónum króna til að auka þátttöku fatlaðra barna og ungmenna í íþróttum. Þau undirrituðu viljayfirlýsingu þess efnis á „Allir með-leikunum“. Með þeim á myndinni eru Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, Þórður Árni Hjaltested, formaður Íþróttasambands fatlaðra, allir aðstandendur verkefnisins og Sóli og Sóla sem eru lukkudýr Allir með-leikanna.

Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, Alma Möller heilbrigðisráðherra og Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, ætla að veita 60 milljónum króna til að auka þátttöku og virkni fatlaðs fólks í íþróttastarfi, einkum fatlaðra barna og ungmenna. Verkefnið er liður í að ná markmiðum 30. greinar samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem fjallar meðal annars um þátttöku fatlaðs fólks í íþróttum.


Um er að ræða áframhald á verkefninu „Allir með“ sem hófst árið 2022 undir merkjunum „Farsælt samfélag fyrir öll – brúum bilið“. Ábyrgð þess er á höndum Íþróttasambands fatlaðra sem vinnur það í samstarfi við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Ungmennafélag Íslands. Bakhjarlar verkefnisins eru ráðuneytin þrjú, ÖBÍ réttindasamtök og Landssamtökin Þroskahjálp. 


Ráðherrarnir tilkynntu um styrkinn  á „Allir með-leikunum“ sem fram fóru í Laugardalshöllinni í gær. Þar tók fjöldi fatlaðra barna þátt í fjölbreyttum íþróttum, svo sem handbolta, körfubolta, fimleikum, frjálsum íþróttum, badminton, keilu, pílu, klifri og jassballet. Styrkurinn er veittur til þriggja ára eða 20 milljónir króna á ári fram til ársins 2028.

Myndir frá leikunum og undirrituninni: