10 nóvember 2025
/
Utanríkisráðuneytið
Beiðni Vélfags um framlengingu á undanþágu synjað
Utanríkisráðuneytið hefur synjað beiðni Vélfags ehf. um frekari framlengingu á tímabundinni undanþágu frá þvingunaraðgerðum og hefur stjórnendum Vélfags verið tilkynnt um ákvörðunina.
Málið er tilkomið vegna frumkvæðis Arion banka að því að frysta fjármuni Vélfags 8. júlí sl. á grundvelli laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023 og 1. mgr. 2. gr. reglugerðar ráðs Evrópusambandsins nr. 2024/2642 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika, sbr. reglugerð nr. 893/2024 um þvingunaraðgerðir varðandi Rússland.
Um er að ræða alþjóðlegar þvingunaraðgerðir, sem Ísland tekur þátt í eins og önnur samstarfsríki. Markmið þeirra er m.a. að draga úr svigrúmi Rússlands til fjölþáttahernaðar á borð við árásir svokallaðs skuggaflota á sæstrengi og aðra neðansjávarinnviði.
Rökstuðningur bankans sneri að því að grunur væri um að félagið Norebo JSC, sem fært var á lista Evrópusambandsins yfir lögaðila sem sæta þvingunaraðgerðum á grundvelli framangreindar reglugerðar 20. maí 2025, væri raunverulegur eigandi Vélfags. Í tilkynningu bankans kom fram að þrátt fyrir ítrekaðar áskoranir hafi ekki borist viðhlítandi skýringar eða gögn af hálfu Vélfags sem sýni fram á að grunur bankans sé ekki á rökum reistur eða að sala Norebo JSC á eignarhlut sínum í Vélfagi hafi verið raunveruleg og sönn með rofi á eigna- og stjórnunarlegum tengslum og yfirráðum. Bankinn hefur frá þeim tíma ekki séð ástæðu til að aflétta frystingu á fjármunum Vélfags á grundvelli þeirra gagna og upplýsinga sem Vélfag hefur lagt fram máli sínu til stuðnings.
Utanríkisráðuneytið veitti Vélfagi í júlí sl. ívilnandi undanþágu frá frystingunni að ákveðnum skilyrðum uppfylltum til að tryggja svokallaðan “eldvegg” milli félagsins og aðila á þvingunarlista. Var þetta gert til að viðhalda starfsemi félagsins og veita því svigrúm til leita lögmætra leiða til að losa Vélfag undan frystingu fjármuna.
Niðurstaða ráðuneytisins um synjun á framlengingu undanþágu nú byggir á því að skilyrði undanþágunnar af hálfu ráðuneytisins hafi ekki verið uppfyllt af félaginu og forsvarsmönnum þess. Forsendur ákvörðunarinnar byggja á því að þrátt fyrir ítrekaðar framlengingar undanþágunnar, m.a. til að tryggja vandaða málsmeðferð, hafi ráðuneytinu ekki borist gögn eða upplýsingar um að Vélfag hafi gripið til lögmætra og varanlegra aðgerða til að losa félagið undan frystingu fjármuna félagsins, m.a. með því að skila Arion banka frekari gögnum til staðfestingar á því að sala Vélfags hafi verið raunveruleg og sönn. Þá liggja ekki fyrir neinar upplýsingar um mögulegar aðgerðir félagsins til að losa um eignarhaldið. Engar upplýsingar liggi því fyrir um að breyting hafi orðið á stöðu Vélfags þrátt fyrir að ráðuneytið hafi veitt ítarlegar upplýsingar um markmið, framkvæmd og öryggisráðstöfun (eldvegg) hinnar tímabundnu undanþágu.
Þessu til viðbótar er það mat ráðuneytisins að Vélfag hafi ekki sýnt samstarfsvilja til að tryggja markmið öryggisráðstöfunar (eldveggs) hinnar tímabundnu undanþágu ráðuneytisins. Þvert á móti hafa ítrekaðar tilraunir verið gerðar sem miði að því að grafa undan tilgangi og virkni hennar.
Lagaheimild ráðuneytisins til undanþágu grundvallast á því að ekki verði með því grafið undan eða komist hjá markmiðum þvingunaraðgerðanna. Það er mat ráðuneytisins að þessi forsenda sé ekki til staðar og því ekki forsvaranlegt að viðhalda undanþágunni.