10 nóvember 2025
/
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Ráðherra undirritar reglugerð um plastvörur
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur undirritað reglugerð sem innleiðir ákvæði Evróputilskipunar um að draga úr áhrifum plastvara á umhverfið.
Með reglugerðinni, sem byggir á framkvæmdarreglugerð Evrópusambandsins (ESB) 2020/2151, eru gerðar kröfur um merkingar á tilteknum einnota plastvörum, svo sem tíðavörum, blautþurrkum, tóbaksvörum sem innihalda plast og glösum fyrir drykkjarvörur. Merkingar þessar hafa nú þegar verið í notkun á vörum á íslenskum markaði undanfarin ár en þeim er ætlað að upplýsa neytendur um að varan innihaldi plast og að það geti haft neikvæð áhrif endi hún í umhverfinu.
Í reglugerð ráðherra er kveðið á um að merkingar á innfluttum vörum geti borið upprunalegan texta á dönsku, norsku, sænsku eða ensku. Með þessu er ætlunin að draga úr kostnaði við merkingar og markaðssetningu vara á íslenskum markaði sem annars gæti orðið íþyngjandi fyrir framleiðendur og innflytjendur og haft neikvæð áhrif á verðlag og vöruframboð, einkum á vörum sem eru mikilvægar fyrir konur og barnafjölskyldur.
„Með því að heimila erlendar merkingar á innfluttum vörum tryggjum við að reglurnar nái markmiði sínu án þess að skapa óþarfa kostnað eða flækjur fyrir íslenskt atvinnulíf,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Reglugerðin felur jafnframt í sér landsbundið markmið um söfnun veiðarfæraúrgangs úr plasti, þar sem stefnt er að því að safna árlega að lágmarki 60% af því magni veiðarfæra sem innihalda plast og eru sett á markað. Verkefnið er unnið í samvinnu við Úrvinnslusjóð og fyrirtæki í sjávarútvegi.
Reglugerðin hefur verið birt og öðlast þegar gildi.