10 nóvember 2025
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Samstarfsvettvangur um mannvirkjarannsóknir og -prófanir stofnaður í dag
Samstarfsvettvangur um mannvirkjarannsóknir og prófanir verður formlega stofnaður á viðburði sem haldinn verður hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, HMS, í hádeginu í dag, mánudaginn 10. nóvember kl. 12:00-13:00.
Hægt er að fylgjast með viðburðinum í streymi:
Hlutverk samstarfsvettvangsins er að efla slagkraft, sýnileika og samhæfingu rannsókna og prófana í húsnæðis- og mannvirkjagerð á Íslandi. Að samstarfinu koma stjórnvöld, menntastofnanir og atvinnulíf.
Meðal þeirra sem koma fram á viðburðinum eru:
- Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra
- Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra
- Hermann Jónasson, forstjóri HMS
- Sigríður Ósk Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri umhverfis- og gæðasviðs Hornsteins og fulltrúi í vísindaráði
- Elín Þórólfsdóttir, teymisstjóri starfsumhverfis mannvirkjagerðar
Í pallborði verða:
- Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs hjá Samtökum iðnaðarins
- Ólafur Sveinn Haraldsson, forstöðumaður rannsókna hjá Vegagerðinni og aðjúnkt Háskóla Íslands
- Ólafur Haralds Wallevik – PhD, prófessor í byggingarverkfræði í Háskólanum í Reykjavík
- Þórunn Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri mannvirki og sjálfbærni hjá HMS
Einnig er hægt að mæta í salinn og er fólk þá beðið um að skrá sig. Viðburðurinn fer fram hjá HMS í Borgartúni 21.