11 nóvember 2025
/
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Fimm hundruð milljónir til sveitarfélaga í aðgerðum gegn ofbeldi meðal barna
Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur veitt 474 milljónum króna til sveitarfélaga í þágu farsældar barna með áherslu á að sporna við þróun í átt að auknu ofbeldi meðal barna. Styrkirnir eru liður í aðgerðum stjórnvalda vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum.
Auglýst var eftir umsóknum frá sveitarfélögum 30. maí síðastliðinn. Alls bárust 119 umsóknir frá 37 sveitarfélögum með aðkomu fjölda annarra sveitarfélaga og haghafa s.s. lögregluembætta, íþróttafélaga og félagasamtaka. Horft var sérstaklega til verkefna sem byggðu á víðtæku samstarfi við nærliggjandi sveitarfélög með áherslu á forvarnir og snemmtæka íhlutun.
Umsóknirnar sýndu fjölbreytta nálgun sveitarfélaga og samstarfsaðila í aðgerðum til að styðja við farsæld barna og draga úr ofbeldi, og mikla grósku í víðtæku samstarfi ólíkra aðila víðs vegar um landið. Alls fengu 14 sveitarfélög styrk fyrir 15 verkefni.
Eitt stærsta verkefnið sem hlaut styrk er verkefnið Bráða- og viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna frá Reykjavíkurborg og höfuðborgarsvæðinu í samstarfi við Barna og fjölskyldustofu og Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu. Markmið verkefnisins er að draga úr ofbeldi og tryggja samræmd og skjót viðbrögð þjónustuaðila í anda farsældarlaganna. Teymið, sem verður þverfaglegt og miðlægt fyrir öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, virkjast innan 24 klst. þegar ofbeldismál barna á aldrinum 10–18 ára koma upp. Verkefnið felur einnig í sér eftirfylgd, stuðning við skóla og handleiðslu. Háskóli Íslands annast mat verkefnisins í samvinnu við viðbragðsaðila og foreldra.
Meðal annarra verkefna sem hlutu styrk var verkefnið FORNOR sem leitt er af Skagaströnd í samstarfi við sveitarfélög á Norðurlandi vestra. FORNOR er verkefni sem snýr að því að innleiða sameiginlega forvarnaráætlun á svæðinu.
Akureyri hlaut styrk fyrir verkefnið Fjölskylduþjónusta Norðurlands eystra. Verkefnið miðar að því að efla farsæld barna og fjölskyldna með snemmtækri, samþættri og fjölskyldumiðaðri þjónustu sem byggir á norskri fyrirmynd. Úrræðið er tímabundið stuðningskerfi sem tekur á fjölbreyttum áskorunum í lífi barna og felur m.a. í sér barnasmiðjur, fjölskyldumeðferð og eftirfylgni í allt að 12 mánuði.
Þá hlaut Reykjanesbær styrk vegna verkefnisins Ávísun á farsæld á Suðurnesjum en verkefnið er ætlað að tryggja snemmtæka íhlutun og samþættan stuðning við börn og ungmenni. Verkefnið byggir á skimun skólahjúkrunarfræðinga, teymi tengslaþjálfa og nýju kerfi ávísana á frístundir, félagsfærni og geðheilbrigðisúrræði. Markmiðið er að bregðast tímanlega við stuðningsþörf, efla þátttöku og vellíðan barna og koma í veg fyrir að þau falli á milli kerfa.
Alls sóttu 8 sveitarfélög um styrk vegna verkefnisins Heillaspor sem er heildræn nálgun til að styðja við farsæla þátttöku barna í skóla- og frístundastarfi. Miðstöð menntunar og skólaþjónustu veitir faglega handleiðslu og stuðning við innleiðingu á verkefninu og fengu sveitarfélögin öll styrk vegna þessa.
„Það er ánægjulegt að sjá þessa miklu fjölbreytni í verkefnum sem undirstrikar vilja sveitarfélaga til þess að láta gott af sér leiða þegar kemur að farsæld barna og viðbrögðum við ofbeldi gegn börnum. Ég hlakka til að fylgjast með framvindu verkefnanna og óska styrkþegum velfarnaðar í sínum störfum,“ segir Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta og barnamálaráðherra.
Uppfært 11.11.25 kl. 11:51