11 nóvember 2025

/

Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Ráðherra eykur fjárfestingarstuðning við garðyrkjubændur

{image.Description}
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur ákveðið að fjárfestingarstuðning við orkusparandi aðgerða í gróðurhúsum.

Í ljósi góðs árangurs fyrri úthlutunar til orkusparandi aðgerða í gróðurhúsum hefur Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, ákveðið að ráðstafa aukalega 100 milljónum króna í verkefnið. Um er að ræða framhald fyrri úthlutunar sem hvetur til fjárfestinga í orkusparandi tækni og búnaði í ylrækt. Loftslags- og orkusjóður hefur umsjón með úthlutun styrkjanna.

Markmið styrkjanna er að draga úr orkunotkun í gróðurhúsum og bæta orkunýtni, meðal annars með innleiðingu á LED-ljósum og öðrum orkusparandi búnaði. Aðgerðirnar eiga að skila sér í lægri rekstrarkostnaði fyrir bændur og stuðla að minni orkuþörf samfélagsins í heild.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Ég er gríðarlega ánægður með árangurinn af þessu verkefni sem ég setti í gang fljótlega eftir að ég tók við ráðherraembætti. Þetta er í fyrsta skipti í áratugi sem stjórnvöld ráðast í skipulegan fjárfestingarstuðning við framleiðendur garðyrkjuafurða, og styrkirnir skila sér í lækkandi orkukostnaði og aukinni framleiðni í greininni. Að mati Umhverfis- og orkustofnunar er orkusparnaðurinn af átakinu frá því í vor verulegur eða allt að 8,3 GWst sem jafngildir árlegri raforkunotkun 2 þúsund heimila. Nú gefum við í og styðjum enn frekar við orkusparandi aðgerðir í gróðurhúsum með aukinni fjárveitingu. Ég hvet garðyrkjubændur eindregið til að taka þátt.“

Styrkhæfi verkefna og áherslur

Styrkirnir verða veittir til framleiðenda garðyrkjuafurða og verður áhersla lögð á að styrkja verkefni sem falla að hlutverki sjóðsins. Horft verður til eftirfarandi forgangsröðunar við úthlutun:

  • Verkefni sem skila mestum orkusparnaði á hverja styrkkrónu.
  • Verkefni sem auka rekstrarhagkvæmni í rekstri gróðurhúss.
  • Lausnir sem auka tæknivæðingu og samkeppnishæfni greinarinnar.
  • Verkefni sem nýtast sem fyrirmynd fyrir aðra í greininni.
  • Hvort verkefni hafi áður hlotið stuðning frá Loftslags- og orkusjóði.

Hámarksstyrkhlutfall og styrkfjárhæð er mest  40% af heildarkostnaði fjárfestingar (án vsk.) og að hámarki 15 m.kr. fyrir hvern framleiðanda garðyrkjuafurða.

Nánari upplýsingar er að finna á vef Loftslags- og orkusjóðs og er umsóknarfrestur til 15. desember 2025.