12 nóvember 2025

/

Atvinnuvegaráðuneytið

Hagsmunir neytenda í forgangi við gjaldtöku á bílastæðum

{image.Description}
istock/AlexKane
Bilastæði við Reynisfjöru.

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur mælt fyrir frumvarpi til laga um ný markaðssetningarlög en lögin hafa það að markmiði að tryggja gott neytendaumhverfi, meðal annars þegar kemur fyrirkomulagi og framkvæmd gjaldskyldu á bílastæðum.

Frumvarpið gerir ráð fyrir eflingu og auknu sjálfstæði Neytendastofu, þar með töldu eftirlitsstarfi og eftirfylgni gagnvart rekstraraðilum bílastæða.

Í öðru lagi eru Neytendastofu veittar öflugri og skýrari sektarheimildir til að tryggja fullnægjandi varnaðaráhrif og aukna eftirfylgni með lögunum.

Í þriðja lagi eru í frumvarpinu að finna skýrari ákvæði um óhæfilega samningsskilmála. Ákvæðið felur í sér skýra heimild fyrir Neytendastofu til að hindra notkun samningsskilmála sem eru óhæfilegir gagnvart neytendum en það er mikilvægt að sú heimild sé til staðar til að rétta þann aðstöðumun sem kann að vera á milli neytenda og fyrirtækja sem semja skilmála einhliða á sínum forsendum frekar en neytenda. Fyrirséð er að þetta ákvæði muni nýtast með ýmsum hætti, í aðgerðum stjórnvalda og þá fyrst og fremst Neytendastofu, til að ná betur utan um fyrirkomulag gjaldtöku á bílastæðum, út frá hagsmunum neytenda, og gera skýrari kröfur til þeirra aðila sem sjá um gjaldskyldu á bílastæðum landsins.

Fjöldi ábendinga og kvartana hafa borist Neytendastofu að undanförnu vegna viðskiptahátta rekstraraðila gjaldskyldra bílastæða og tók stofnunin ákvarðanir gagnvart fimm fyrirtækjum í sumar þar sem komist var að þeirri niðurstöðu fyrirtækin hafi brotið gegn neytendalöggjöf með ýmsum hætti. Frekari mál eru til skoðunar og í undirbúningi hjá stofnuninni, m.a. í kjölfar nýlegrar úttektar hennar á landsvísu.

Til að fylgja eftir fyrri ákvörðunum hefur Neytendastofa einnig birt á heimasíðu sinni drög að leiðbeiningum fyrir gjaldskyld bílastæði. Í leiðbeiningunum koma fram þær kröfur sem Neytendastofa gerir í ákvörðunum sínum auk leiðbeininga um önnur atriði. Þannig er fjallað um hvaða upplýsingar skal veita, hvernig þær skulu veittar auk þess sem leiðbeint er um ýmis atriði, m.a. að gæta þurfi ákvæða umferðalaga um notkun umferðamerkja og um stæðiskort fyrir hreyfihamlaða.

Sem liður í aðgerðum stjórnvalda á þessu sviði er einnig í undirbúningi gerð heimasíðu með upplýsingum um gjaldskyld bílastæða á landsvísu, sem og möguleg upptaka og aðlögun nýlegra norskra reglna á þessu sviði sem ná heildstætt yfir kröfur til fyrirtækja varðandi upplýsingagjöf, merkingar og fyrirkomulag innheimtu bílastæðagjalda.

Heimasíða Neytendastofu.