12 nóvember 2025

/

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Ísland lögfestir samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks

{image.Description}
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra.

Ísland hefur lögfest samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Frumvarp Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, um lögfestinguna var samþykkt á Alþingi rétt í þessu.

Samningnum er ætlað að tryggja að fatlað fólk njóti mannréttinda sinna og koma í veg fyrir mismunun á grundvelli fötlunar. „Frú forseti, ég gæti næstum því farið að gráta. Ég er svo glöð að vera komin hingað,“ sagði Inga Sæland við atkvæðagreiðsluna á Alþingi.

Lengi hefur verið kallað eftir því að Ísland lögfesti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og lagði Inga sjálf fjórum sinnum fram þingmannafrumvarp þess efnis þegar hún var þingmaður í stjórnarandstöðu. Þegar hún mælti fyrir málinu á Alþingi sem ráðherra lagði hún áherslu á að samningurinn markaði tímamót í mannréttindabaráttu fatlaðra. „Auk þess að skilgreina sjálfsögð réttindi þeirra þá byggir hann á þeirri hugmyndafræði að fötlun sé hluti af mannlegum fjölbreytileika fremur en frávik,“ sagði hún.

Jafnrétti og bann við mismunun væru hornsteinn þeirra réttinda sem samningurinn kvæði á um.

„Jafnrétti er þannig rauði þráðurinn í gegnum allar greinar samningsins og mun lögfesting hans hafa jákvæð áhrif á réttindi alls fatlaðs fólks hér á landi, óháð aldri, uppruna eða búsetu. Samningurinn tryggir fötluðu fólki víðtæk mannréttindi: Borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi. Réttindi sem ófötluðu fólki þykja sjálfsögð,“ sagði ráðherra.

Lögfesting og heildstæð stefna í málefnum fatlaðs fólks

Ísland undirritaði samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks árið 2007 og fullgilti hann árið 2016. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Flokks fólksins, Samfylkingar og Viðreisnar kom fram að lögfesta skyldi samninginn.

Lögfestingin hefur í för með sér að hægt verður að beita samningnum sem fullgildri réttarheimild fyrir dómstólum og öðrum úrskurðaraðilum.

Til að koma réttindum samningsins betur í framkvæmd og undirbúa lögfestinguna hefur verið unnið eftir landsáætlun um málefni fatlaðs fólks sem er fyrsta heildstæða stefna Íslands í málefnum fatlaðs fólks.

Landsáætlunin felur í sér skýra framtíðarsýn, kortlagningu, greiningu og mat á kostum til að stuðla að farsælli innleiðingu samningsins. Hún var unnin í afar breiðu samráði og inniheldur 60 aðgerðir sem snerta fjölmörg málefnasvið, stofnanir, sveitarfélög og aðra hagaðila.

Sjá nánar: