12 nóvember 2025
/
Atvinnuvegaráðuneytið
Ný stjórn Samkeppniseftirlitsins skipuð
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur skipað nýja stjórn Samkeppniseftirlitsins.
Aðalmenn stjórnar eru:
- Margrét Einarsdóttir, doktor í lögfræði og prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík, stjórnarformaður
- Björg Árnadóttir, MBA og framkvæmdastjóri Midgard Adventure
- Kári Joensen, hagfræðingur og lektor við Háskólann á Bifröst
Varamenn eru:
- Helga Reynisdóttir, LL.M og héraðsdómslögmaður hjá AM Praxis
- Kári Kristjánsson, hagfræðingur hjá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands
- Steindór Dan Jensen, lögfræðingur hjá atvinnuvegaráðuneytinu
Skipun stjórnar gildir frá 11. nóvember 2025 til 11. nóvember 2029. Hlutverk stjórnar er að móta áherslur í starfi og fylgjast með starfsemi og rekstri Samkeppniseftirlitsins.
Samkeppniseftirlitinu ber að ná markmiðum samkeppnislaga með því að vinna gegn óhæfilegum hindrunum og takmörkunum á frelsi í atvinnurekstri, vinna gegn skaðlegri fákeppni og samkeppnishömlum og auðvelda aðgang nýrra keppinauta að markaðnum.
Hlutverk Samkeppniseftirlitsins felur m.a. eftirfarandi í sér:
- Að framfylgja boðum og bönnum samkeppnislaga og eftir atvikum 53. og 54. gr. EES-samningsins (samningur um evrópskt efnahagssvæði) og leyfa undanþágur skv. samkeppnislögum
- Að ákveða aðgerðir gegn samkeppnishamlandi hegðun fyrirtækja
- Að gæta þess að aðgerðir opinberra aðila takmarki ekki samkeppni og benda stjórnvöldum á leiðir til þess að gera samkeppni virkari og auðvelda aðgang nýrra keppinauta að markaðnum
- Að fylgjast með þróun á samkeppnis- og viðskiptaháttum á einstökum mörkuðum í íslensku viðskiptalífi og kanna stjórnunar- og eignatengsl milli fyrirtækja