12 nóvember 2025

/

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Vinna hefst að fyrstu stefnu og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna á Íslandi

{image.Description}
Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, og Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir sem leiða mun vinnu stýrihóps

Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, hefur ákveðið að skipa stýrihóp með það hlutverk að móta sértækar og markvissar aðgerðir til að uppræta vítahring fátæktar og tryggja börnum hér á landi jöfn tækifæri óháð efnahag og félagslegri stöðu. Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingmaður Flokks fólksins og formaður Velferðarnefndar Alþingis, mun leiða stýrihópinn.

Í framhaldinu verður lögð fram fyrsta stefna og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna á Íslandi. Stefnan og aðgerðaáætlunin eru eitt af stefnumálum mennta- og barnamálaráðherra, Flokks fólksins og ríkisstjórnarinnar. Aðgerðaáætlunin verður unnin í víðtæku samráði, meðal annars við grasrótarsamtök fólks sem býr við fátækt, fræðasamfélagið og aðra hagaðila. Áætlunin mun sameina markvissar aðgerðir til að draga verulega úr fátækt hjá barnafjölskyldum og stuðla að aukinni þátttöku barna sem búa við fátækt.

Áætlað er að eitt af hverjum tíu börnum á Íslandi búi við fátækt. Börn sem alast upp við fátækt eiga oftar við heilsufarsvanda, námsörðugleika og félagslega einangrun að stríða. Þetta getur haft langvarandi áhrif á möguleika þeirra til menntunar, atvinnu og tekjuöflunar síðar á lífsleiðinni. Fátækt leggst mismunandi á fjölskyldur en verst á börn einstæðra foreldra, börn foreldra sem eru á örorkubótum, börn af erlendum uppruna og börn sem tilheyra fjölskyldum sem búa við erfiðar félagslegar aðstæður. Með því að fjárfesta í aðgerðum til að draga úr barnafátækt sparar íslenskt samfélag til lengri tíma og stuðlar að meiri jöfnuði og lífsgæðum barna sem búa við fátækt.

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir þingmaður Flokks fólksins og formaður Velferðarnefndar Alþingis mun leiða stýrihóp mennta- og barnamálaráðuneytisins sem hefur það hlutverk að móta sértækar og markvissar aðgerðir til að uppræta vítahring fátæktar og tryggja börnum hér á landi jöfn tækifæri óháð efnahag og félagslegri stöðu.

„Ekkert barn á að alast upp við fátækt á Íslandi. Með því að fjárfesta í aðgerðum til að draga úr barnafátækt sparar íslenskt samfélag til lengri tíma og stuðlar að meiri jöfnuði og lífsgæðum barna sem búa við fátækt, “ segir Kolbrún.

Kolbrún er sálfræðingur og sérfræðingur í klínískri sálfræði. Hún hefur víðtæka reynslu af starfi með börnum í viðkvæmri stöðu, þar á meðal börnum og fjölskyldum þeirra sem búa við efnahagslegar þrengingar og fátækt. Kolbrún var um árabil yfirsálfræðingur á Stuðlum og var um 10 ára skeið sálfræðingur barnaverndarmála í Kópavogi.

Kolbrún hefur haldið fjölmarga fyrirlestra og námskeið um samskipti foreldra og barna, sjálfsstyrkingu og vernd barna og var um sex ára skeið formaður Barnaheilla – Save the children á Íslandi. Sem borgarfulltrúi hjá Reykjavíkurborg beitti hún sér fyrir aðgerðum til að uppræta fátækt hjá barnafjölskyldum í Reykjavík.