13 nóvember 2025

/

Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Dagur íslenskrar tungu: Verðlaunaafhending í Eddu á sunnudag

{image.Description}

Dagur íslenskrar tungu verður haldinn hátíðlegur sunnudaginn næstkomandi í Eddu kl. 14:00, þegar menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra veitir verðlaun Jónasar Hallgrímssonar í 30. skipti. Við sama tilefni er veitt sérstök viðurkenning íslenskrar tungu. Viðurkenninguna skal veita hópi, félagi, verkefni, samtökum, fyrirtækjum eða stofnunum sem hafa sýnt íslenskri tungu ræktarsemi, vakið athygli á henni eða sýnt henni stuðning í verki. 

Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar árið 2024 hlaut Ari Eldjárn fyrir framlag sitt til íslenskrar uppistandsmenningar og fyrir að skemmta ungum sem öldnum á íslenskri tungu. Sérstaka viðurkenningu fyrir stuðning við íslenska tungu sama ár hlutu aðstandendur og þátttakendur í þróunarverkefninu Kveikjum neistann við Grunnskólann í Vestmannaeyjum.

Markmið dags íslenskrar tungu er að minna á mikilvægi íslenskrar tungu og gleðjast og fagna sögu hennar, samtíð og framtíð. Dagurinn er haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, 16. nóvember ár hvert. Víða er efnt til margvíslegra menningarviðburða, má sem dæmi nefna að 50 ára ártíðar Gunnars Gunnarssonar verður minnst með málþingi laugardaginn 15. nóvember. Þar verður sérstaklega fjallað um Gunnar og innflytjendabókmenntir og svo verður Aðventa lesin upp á 20 tungumálum samtímis í Veröld og Eddu. Það er vel til fundið núna þegar styttist í jól. Um helgina hefst einnig bókahátíð í Hörpu, sem er eins konar upphaf jólabókaflóðsins sem margir bíða eftir og er boðið upp á marga spennandi viðburði fyrir alla fjölskylduna. Í Eddu verður handritasýningin Heimur í orðum opin öllum án endurgjalds og boðið verður upp á ritlistasmiðju. 

„Íslenskan er hvorki stirð né stöðnuð; hún krefst umhyggju, uppfærslu og notkunar – og það er verkefni okkar allra. Veitum íslenskunni athygli og því hvernig við getum, hvert og eitt, stutt við hana. Mig langar því að biðla til allra þeirra sem bera hag tungumálsins fyrir brjósti að veita henni sérstaka athygli á degi íslenskrar tungu. Málfræðin þarf ekki að vera fullkomin til að fólk tjái sig. Áhugi og umhyggja fyrir þessari fallegu sameign okkar er það sem skiptir máli og þá mun annað fylgja – á íslensku,“ segir Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.