13 nóvember 2025

/

Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Fjárfest í tæknilausnum vegna losunar frá stóriðju

{image.Description}

Loftslags- og orkusjóður mun veita styrki til nýsköpunar og tækniþróunar sem stuðla að samdrætti í losun frá iðnaði sem fellur undir ETS-kerfið. Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur undirritað reglugerðarbreytingu þess efnis og beint því til stjórnar sjóðsins að auglýsa styrki til slíkra verkefna fyrir allt að 400 milljónir króna fyrir árslok 2025. Þetta er í samræmi við forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum sem kynnt voru 12. september síðastliðinn.

Við mat á umsóknum verða þau verkefni sett í forgang sem skila mestum samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda (koldíoxíð-ígilda) á hverja styrkkrónu. Þá verður litið til þess hvort verkefni hagnýti grunnþekkingu sem þegar er til staðar, beinist að aðilum sem hafa talsverða möguleika á að draga úr losun og hafi áhrif út fyrir einstaka fyrirtæki, félagasamtök eða stofnun.