13 nóvember 2025

/

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

OECD hefur birt skýrslu um framleiðni fyrirtækja á Íslandi

{image.Description}
Hari

Efnahags- og framfarastofnunin (OECD) hefur birt skýrslu um framleiðni fyrirtækja á Íslandi. Í skýrslunni er fjallað um niðurstöður bakgrunnsrannsóknar á framleiðni fyrirtækja á Íslandi sem unnin var samhliða skýrslu stofnunarinnar um íslenskt efnahagslíf sem birt var í júní.

Framleiðni á Íslandi er misjafnlega mikil milli atvinnugreina og er sérstaklega mikil m.a. í auðlindagreinum á borð við sjávarútveg og orkufrekan iðnað. Hægt hefur á vexti framleiðni hér á landi á síðustu áratugum eins og í mörgum öðrum löndum OECD. Sérstaða skýrslunnar felst ekki síst í greiningum OECD á upplýsingum um framleiðni innan einstakra fyrirtækja.