13 nóvember 2025

/

Utanríkisráðuneytið

Öryggismál og stuðningur við Úkraínu í brennidepli á fundi varnarmálaráðherra Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna

{image.Description}
Varnarmálaráðuneyti Finnlands
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ásamt varnarmálaráðherrum Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna.

Haustfundur varnarmálaráðherra Norðurlandanna (NORDEFCO) fór fram í Helsinki í gær. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra tók þátt í fundinum. Norrænt varnarsamstarf, þróun öryggismála í Evrópu og áframhaldandi stuðningur við Úkraínu voru efst á baugi fundarins þar sem yfirmenn hermála Norðurlandanna voru jafnframt viðstaddir. Þá áttu norrænu varnarmálaráðherrarnir fund með kollegum sínum frá Eystrasaltsríkjunum í dag.

Aðild allra Norðurlandanna að Atlantshafsbandalaginu hefur lagt grunn að auknu varnarsamstarfi þeirra. Á fundinum var rætt um fyrirhugaðar breytingar þegar öll Norðurlöndin færast undir herstjórn bandalagsins í Norfolk, Bandaríkjunum, en áhersla verður lögð á að löndin verði ein órofa heild hvað varðar skipulag herstjórna og varnaráætlana innan Atlantshafsbandalagsins.

„Það var mjög gott að funda með kollegunum á Norðurlöndunum, enda hefur varnarsamstarf okkar aldrei verið mikilvægara en einmitt nú, þegar öll ríkin eru orðin aðildarríki að Atlantshafsbandalaginu. Öflug samvinna okkar stuðlar að auknu öryggi í heimshlutanum og styður við markmið og varnargetu Atlantshafsbandalagsins,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.

Á sameiginlegum fundi varnarmálaráðherra Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna var sjónum beint að svæðisbundnum öryggismálum, þar á meðal skuggaflotanum sem Rússar beita til þess að komast hjá viðskiptaþvingunum og öryggisástandinu á austurjaðri Atlantshafsbandalagsins. Ráðherrarnir ræddu varnarviðbúnað og bætt eftirlit bandalagsins á svæðinu, m.a. Eastern Sentry-eftirlitsverkefnið á Eystrasalti og í Póllandi, og undirbúning stofnunar framlínusveitar bandalagsins í Finnlandi, sem Svíar leiða. 

Þá fjölluðu ráðherrarnir einnig um áframhaldandi stuðning við Úkraínu, en ríkin eru í hópi þeirra sem hafa stutt hvað dyggilegast við varnarbaráttu úkraínsku þjóðarinnar. Sérstaklega var rætt um kaup á sértækum, bandarískum varnarbúnaði gegnum hið svokallaða PURL-verkefni (Prioritised Ukraine Requirements List)  sem Atlantshafsbandalagið og Úkraína halda utan um og ákváðu ríkin að leggja í sameiningu 500 milljónir Bandaríkjadala til verkefnisins. Þá hafa ríkin, undir forystu Noregs, komið á fót þjálfunarmiðstöð í Póllandi þar sem úkraínskir hermann fá þjálfun og búnað með stuðningi ríkjanna. 

Utanríkisráðherra segir NB8-ríkin sameinuð í stuðningi sínum við Úkraínu. „Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin, okkar góðu nágrannar, standa áfram þétt saman í stuðningi sínum við varnarbaráttu úkraínsku þjóðarinnar gegn ölöglegu og blóðugu landvinningastríði Rússlands. Þannig er PURL-verkefnið gríðarlega mikilvægur þáttur í því að efla varnir Úkraínu og þar með varnir okkar allra,“ segir Þorgerður Katrín.

Þá tók utanríkisráðherra einnig þátt í pallborðsumræðum á ráðstefnu Atlantshafsbandalagsins um norðurslóðir og viðbúnað í geimnum ásamt öðrum norrænum ráðherrum.