13 nóvember 2025

/

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Ræddi verndarráðstafanir á fundi ráðherra EFTA og ESB

{image.Description}
Mynd/Evrópusambandið
Ráðherrarnir funduðu í Brussel í dag.

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, sat í dag fund fjarmála- og efnahagsráðherra ESB (Ecofin) ásamt ráðherrum frá öðrum EFTA ríkjum. Árlega býður ESB EFTA ríkjunum á Ecofin fund, og þar gefst þeim tækifæri á að taka upp mál sem eru ofarlega á baugi.

Í skýrslu EFTA ríkjanna, sem lögð var fyrir fundinn, var hvatt til áframhaldandi frjálsra viðskipta milli ESB og EFTA ríkjanna, einkum í ljósi þeirra umbreytinga sem orðið hafa í alþjóðakerfinu síðastliðin misseri. Sérstök áhersla var lögð á að varðveita aðgengi ríkjanna að innri markaðnum og hag allra ríkjanna af því að efla samkeppnishæfni Evrópu. Sem formaður EFTA sendinefndarinnar í ár gerði Daði Már grein fyrir meginefni skýrslunnar í máli sínu.

Verndarráðstöfunum mótmælt

Hann lagði líka sérstaka áherslu á neikvæð áhrif fyrirhugaðra verndarráðstafana Evrópusambandsins vegna kísilmálma fyrir íslenska aðila og EES-samstarfið almennt. Þar sagði hann m.a.: „Það veldur okkur miklum vonbrigðum að heyra af tillögu framkvæmdastjórnarinnar um verndarráðstafanir á kísilmálma sem myndu ná til EES EFTA ríkjanna, ef tillagan nær fram að ganga. […] Að beita verndarráðstöfunum gagnvart EES ríkjum, sérstaklega við núverandi aðstæður í alþjóðaviðskiptum, gæti grafið undan okkar nána og trausta áreiðanlega samstarfi.“

Fundur norrænna fjármálaráðherra

Daði Már sat jafnframt í gær norrænan fund ráðherra fjármála og efnahagsmála í Brussel. Viðnámsþróttur fjármálakerfisins og áherslur í ríkisfjármálum við breyttar aðstæður voru helstu umræðuefni fundarins.

Norrænu ráðherrarnir og fulltrúar ráðuneyta sem funduðu í Brussel. Mynd/Sendinefnd Noregs gagnvart ESB

Ræddu ráðherrarnir þær áskoranir sem breytt staða í öryggismálum, meðal annars af völdum fjölþáttaógna, hefur í för með sér fyrir stöðugleika norrænna fjármálamarkaða. Ráðherrarnir voru sammála um að hvert og eitt ríki þyrfti að huga að því að auka viðbúnaðarstig vegna þessa en einnig að slíkt yrði gert á vettvangi norræns samstarfs.

Þá fóru ráðherrarnir yfir horfur í norrænum ríkisfjármálum og aukna óvissu í efnahagsmálum og ræddu áskoranir vegna breyttrar stöðu öryggismála sem hefði í för með sér verulega aukin útgjöld til varnar- og öryggismála. Þeir lögðu jafnframt áherslu á mikilvægi þess að stuðla að langtímavexti og alþjóðlegri samkeppnishæfni norrænu ríkjanna.


Daði Már og Jens Stoltenberg fjármálaráðherra Noregs ásamt öðrum ráðherrum. Mynd/Sendinefnd Noregs gagnvart ESB. 

Umfjöllun um fundinn á vef Norrænu ráðherranefndarinnar Finansielt beredskab og finanspolitiske prioriteringer i en urolig tid