14 nóvember 2025
/
Forsætisráðuneytið
Fátækt algengari meðal fólks af erlendum uppruna
Fátækt er talsvert algengari og dýpri meðal fólks af erlendum uppruna en hjá fólki með íslenskan bakgrunn. Á árinu 2023 voru tæp tuttugu prósent innflytjenda undir lágtekjumörkum miðað við tæp átta prósent þeirra sem voru með íslenskan bakgrunn og hefur sá munur farið vaxandi á undanförnum árum. Staða innflytjenda er misjöfn eftir upprunalandi, aldri, dvalartíma, atvinnustöðu og starfsgrein en fátækt er sérstaklega algeng meðal barna og annarra einstaklinga sem eru tiltölulega nýfluttir til Íslands.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu sem unnin var fyrir forsætisráðherra og er hluti rannsóknaverkefnis sem hófst árið 2022 um fátækt og áætlaðan samfélagslegan kostnað. Skýrslan sem ber heitið Staða fólks af erlendum uppruna – samfélagslegur kostnaður vegna fátæktar var rædd á fundi ríkisstjórnarinnar í dag.
Í niðurstöðukafla skýrslunnar segir að aukin hætta á fátækt meðal nýfluttra innflytjenda endurspegli samspil margra þátta. Skortur á félagslegu tengslaneti, tungumálahindranir og misræmi milli menntunar og krafna íslensks vinnumarkaðar geti aukið líkur á fátækt. Þættir eins og dvalarlengd, fjölskyldugerð, uppruni og atvinnuöryggi vegi þar þungt. Sú margþætta mynd kalli á heildstæða opinbera stefnumótun sem byggja þurfi á langtímahugsun og samvinnu ólíkra aðila. Með því að skilja undirliggjandi áskoranir megi leggja grunn að markvissum og sérsniðnum aðgerðum sem stuðli að inngildingu og bættum lífskjörum innflytjenda til framtíðar.
Á fundi ríkisstjórnarinnar voru tillögur um eftirfylgni skýrslunnar til umræðu. Verður niðurstöðum hennar m.a. beint til umfjöllunar í innflytjendaráði sem samkvæmt lögum um málefni innflytjenda er félags- og húsnæðismálaráðherra til ráðgjafar um faglega stefnumótun. Tillögur sem lúta að börnum og varða m.a. aukinn stuðning við börn sem teljast til annarrar kynslóðar innflytjenda og íslenskukennslu fullorðinna verða samhæfðar vinnu stýrihóps á vegum mennta- og barnamálaráðherra. Verkefni hópsins er að móta stefnu og skilgreina markvissar aðgerðir til að uppræta vítahring fátæktar og tryggja börnum hér á landi jöfn tækifæri óháð efnahag og félagslegri stöðu.