14 nóvember 2025
/
Innviðaráðuneytið
Minningardagur: Ungt fólk ekki eins spennt fyrir öryggisbeltum
Árlegur alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa er haldinn sunnudaginn 16. nóvember. Þetta er í fimmtánda sinn sem minningardagurinn er haldinn hér á landi. Í ár er kastljósinu sérstaklega beint að bílbeltanotkun, sérstaklega meðal ungs fólks.
Í viðhorfskönnunum sem Samgöngustofa fékk Gallup til að gera fyrir ári síðan kemur fram að bílbeltanotkun hefur dregist talsvert saman meðal ungs fólks, einkum ungra karlmanna. Fjöldi ungs fólks notar því ekki öryggisbelti að staðaldri. Við þessu var strax brugðist með herferð á samfélagsmiðlum en betur má ef duga skal. Á hverju ári verða mörg alvarleg slys, þ.m.t. banaslys, sem rekja má til þess að bílbelti eru ekki notuð. Í nýlegri samantekt sem byggir á slysatölum Samgöngustofu kemur fram að yfir helmingur þeirra sem lést innanbæjar í bifreið á síðustu 20 árum var beltislaus.
Sá sem notar ekki bílbelti er í um 13 sinnum meiri hættu á að verða fórnarlamb banaslyss en sá sem notar beltið. Þetta sést á samanburði á fjölda þeirra sem nota belti almennt í umferðinni og tíðni beltanotkunar hjá þeim sem látast í umferðarslysum hins vegar.
Vísbendingar um að 10-15% eigi það til að nota ekki belti
Hér má nálgast nýjustu viðhorfskönnun um aksturshegðun almennings sem Gallup gerði fyrir Samgöngustofu haustið 2025. Sérstök athygli er vakin á niðurstöðum á bls. 178-198 en þar er spurt um notkun öryggisbelta. Af þeim niðurstöðum má ætla að 10-15% fólks sem situr í bílum eigi það til að nota ekki öryggisbelti að staðaldri. Eins og fyrr sagði er það fólk rúmlega helmingur þeirra sem látast í bifreiðum í þéttbýli.
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra: „Við minnumst í dag allra þeirra sem látist hafa í umferðarslysum eða slasast alvarlega. Orsakir slíkra slysa geta verið ýmsar en það er mikið áhyggjuefni þegar kannanir gefa sterkar vísbendingar um að hópur fólks láti það vera að spenna öryggisbeltin. Of mörg dæmi sanna að afleiðingar geta orðið mjög alvarlegar þegar fólk lendir í slysum án belta. Við höfðum náð góðum árangri á þessu sviði og því verðum við nú öll að bregðast við og minna hvert annað á beltin. Betur má ef duga skal.“
Minningarstundir um land allt
Haldnar verða minningarstundir víða um land. Auk Reykjavíkur er staðfest að viðburðir verði á Akureyri, Breiðdalsvík, Borgarbyggð, Dalvík, Eskifirði, Grímsnes- og Grafningshreppi, Ísafirði, Kjalarnesi, Múlaþingi, Ólafsfirði, Siglufirði og Vestmannaeyjum í samvinnu við einingar Slysavarnafélagsins Landsbjargar og fleiri viðbragðsaðila. Líklega munu fleiri staðir bætast við en nánari upplýsingar um það má sjá á minningardagur.is.
Í Reykjavík verður athöfn við þyrlupall bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi kl. 14. Öllum er velkomið að taka þátt og að venju verður einnar mínútu þögn sem landsmenn eru hvattir til að taka þátt í. Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra, flytja ávörp og þá mun Hilmar Sigurjónsson lögregluþjónn segja frá reynslu sinni af tveimur umferðarslysum. Hilmar lenti í öðru þeirra þar sem öryggisbelti komu til bjargar en hann kom að hinu slysinu en þar hafði það alvarlegar afleiðingar að bílbelti voru ekki notuð.
Þau sem ekki komast á viðburði eru hvött til að sýna viðeigandi hluttekningu og leiða hugann að þeirri ábyrgð sem við öll berum í umferðinni. Einnig er rík hefð fyrir því hér á landi að færa á þessum degi starfsstéttum, sem sinna björgun og aðhlynningu þegar umferðarslys verður, þakkir fyrir mikilvægt og óeigingjarnt starf.
Einkennislag dagsins er lag KK, I Think of Angels, í flutningi hans og Ellenar sem samið var til minningar um systur þeirra sem lést í umferðarslysi í Bandaríkjunum árið 1992. Lagið verður flutt samtímis á öllum útvarpsstöðum á minningardaginn kl. 14:00. Hinsegin kórinn mun flytja lagið á minningarathöfninni í Fossvogi.
Að baki minningardeginum standa innviðaráðuneytið, Samgöngustofa, Landsbjörg, Neyðarlínan, Lögreglan, Vegagerðin og ÖBÍ réttindasamtök.
Tölfræði um fjölda látinna í umferðinni
Frá því að fyrsta banaslysið var skráð hér á landi 25. ágúst 1915 hafa 1.632 látist í umferðinni á Íslandi (til og með 11. nóv. 2025). Enn fleiri slasast alvarlega, takast á við áföll, sorgir og eftirsjá af þessum völdum.
Það sem af er þessu ári (2025) hafa 8 einstaklingar látið lífið í umferðinni hér á landi. Hér að neðan er yfirlit um fjölda látinna í umferðinni í ár og á undanförnum árum
- 2025 – 8 látnir (það sem af er ári)
- 2024 – 13 látnir
- 2023 – 8 látnir
- 2022 – 9 látnir
- 2021 – 9 látnir
- 2020 – 7 látnir
- 2019 – 6 látnir
- 2020-2024 – 9 látnir að meðaltali á ári
- 2010-2019 – 12,2 látnir að meðaltali á ári
- 2000-2009 – 19 látnir að meðaltali á ári
Í slysaskýrslum Samgöngustofu er að finna mikilvæga tölfræði. Þróun er í rétta átt þótt vitanlega sé eitt banaslys einu of mikið.
- Sjá dagskrá allra viðburða og nánari upplýsingar á vefnum minningardagur.is