14 nóvember 2025
/
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Niðurstöður nýrrar lestrarkönnunar
Niðurstöður úr nýrri lestrarkönnun, meðal Íslendinga 18 ára og eldri, sýna að þjóðin ver að jafnaði um klukkustund á dag í að lesa og/eða hlusta á bækur. Þrátt fyrir það hefur heildartíminn sem fólk ver í lestur/hlustun minnkað á undanförnum árum og fleiri segjast ekki verja neinum tíma í bóklestur daglega. Konur lesa að jafnaði meira en karlar, þau eldri meira en þau yngri og nær helmingur landsmanna er með áskrift að hljóðbókaveitu.
Miðstöð íslenskra bókmennta, í samstarfi við Borgarbókasafn Reykjavíkur, Félag íslenskra bókaútgefenda, Hagþenki, Landsbókasafn - Háskólabókasafn, Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO og Rithöfundasamband Íslands lét gera umrædda könnun á bóklestri þjóðarinnar. Rannsóknarfyrirtækið Prósent sá um framkvæmd könnunarinnar og fór hún fram dagana 7. til 20. október 2025. Svarendur voru 998.
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið er með margvíslegar aðgerðir í bígerð sem lúta að því að gera bókaútgáfu og bóklestri hærra undir höfði. Undanfarin ár hafa stjórnvöld veitt yfir 400 milljónir á ári í stuðning við útgáfu bóka á íslensku sem hefur reynst mikil innspýting inn í bæði sköpun og útgáfu íslenskra bókmennta.
„Vilji minn stendur til þess að halda áfram að huga að stöðu íslenskunnar meðal barna og ungmenna en mér finnst líka áríðandi að við vekjum áhuga fólks á öllum aldri á íslenskri tungu og þá er ég líka að hugsa um lestur fullorðinna. Það er áhyggjuefni að bóklestur sé að verða jaðaríþrótt á Íslandi. Á því munum við taka í nýrri bókmenntastefnu sem von er á næsta vor. Við höfum þegar hafið undirbúning hennar með því að láta gera úttekt á íslenskum bókamarkaði sem von er á í febrúar,“ segir Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.
Nánari útlistun á niðurstöðunum má nálgast á vef Miðstöðvar íslenskra bókmennta.