14 nóvember 2025

/

Dómsmálaráðuneytið

Norrænir ráðherrar ræddu mikilvægi almannavarna og löggæslu

{image.Description}
Norrænir ráðherrar almannavarna á fundi Haga-samstarfsins í Helsinki í gær

Í gær funduðu norrænir ráðherrar almannavarna á árlegum fundi Haga-samstarfsins sem haldinn var í Helsinki. Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra og ráðherra almannavarna sat fundinn. Á fundinum ræddu ráðherrarnir meðal annars um mikilvægi þess að efla almannavarnir og löggæslu m.a. vegna fjölþáttaógna.

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra og ráðherra almannavarna á fundinum í gær

„Aukin samstaða Norðurlanda gerir okkur öflugri og betur í stakk búin til að verja fólk og innviði. Öflug löggæsla og almannavarnir eru grunnforsenda þess að tryggja öryggi. Við verðum að efla borgaralegan viðbúnað okkar, áfallaþol og samhæfingu – bæði hér á Íslandi og þvert á landamæri. Þetta er lykilatriði í umræðunni um fjárfestingar í öryggis- og varnartengdum verkefnum,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.

Haga-samstarfið er norræn samvinna á sviði almannavarna sem hefur það að markmiði að efla borgaralegan viðbúnað á Norðurlöndunum og auka öryggi almennings með því að styrkja samstarf Norðurlanda um almannavarnir. Finnland fer með formennsku Haga samstarfsins í ár.

Auknar öryggisáskoranir kalla á náið samstarf

Í ljósi aukinna öryggisáskorana í Evrópu ræddu ráðherrarnir um mikilvægi þess að öll Norðurlöndin auki borgaralegan viðbúnað sinn og áfallaþol. Þá var áhersla lögð á fjölþáttaógnir og voru ráðherrarnir á einu máli um að jafnvel þó hernaðarlegur viðbúnaður sé mikilvægur til að efla öryggi, nægir slíkur viðbúnaður ekki einn og sér.

Torsten Pedersen, Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, Mari Rantanen, Kristine Kallset og Carl-Oskar Bohlin

Torsten Pedersen, Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, Mari Rantanen, Kristine Kallset og Carl-Oskar Bohlin 

„Ísland er eina NATO-ríkið sem er ekki með innlendan her. Við þurfum fyrst og fremst að efla borgaralega innviði, sem eru fyrsta lína varna. Ég nefni lögreglu, almannavarnir og landhelgisgæsluna í því samhengi. Það er gríðarlega mikilvægt að við höfum burði til að verja íbúa landsins, mikilvæga innviði og samfélagið í heild sinni. Þá gildir einu hvort um er að ræða náttúruhamfarir eða fjölþáttaógnir“ segir ráðherra.

Áframhaldandi stuðningur við Úkraínu í forgangi

Ráðherrarnir undirstrikuðu sameiginlegan vilja Norðurlanda til að halda áfram stuðningi við Úkraínu, þar með talið á sviði almannavarna. Mikilvægt er talið að nýta lærdóm Úkraínu af árásarstríði Rússlands, einkum þegar kemur að viðbúnaði, björgunarstörfum og borgaralegum innviðum.