14 nóvember 2025

/

Dómsmálaráðuneytið

Sjö sækja um embætti dómara við Landsrétt

{image.Description}
Hari

Hinn 24. október 2025 auglýsti dómsmálaráðuneytið í Lögbirtingablaði tvö embætti dómara við Landsrétt laus til umsóknar. Annars vegar er um að ræða skipun í embætti dómara við Landsrétt frá 1. janúar 2026. Hins vegar er um að ræða setningu í embætti dómara við Landsrétt. Sett verður í það embætti hið fyrsta til og með 28. febrúar 2029. Umsóknarfrestur rann út þann 10. nóvember síðastliðinn og eru umsækjendur eftirtaldir:

  • Eiríkur Elís Þorláksson dósent,
  • Halldóra Þorsteinsdóttir héraðsdómari,
  • Hildur Briem héraðsdómari,
  • Hulda Árnadóttir héraðsdómari,
  • Ingibjörg Þorsteinsdóttir héraðsdómari og dómstjóri,
  • Ragnheiður Snorradóttir héraðsdómari,
  • Þorbjörg I. Jónsdóttir lögmaður.

Umsóknir verða afhentar dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara til meðferðar á næstu dögum.