17 nóvember 2025

/

Atvinnuvegaráðuneytið

Hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda

{image.Description}
istock/anusorn nakdee

 

 

Verðlagsnefnd búvara hefur tekið ákvörðun um hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda.

Eftirfarandi verðbreytingar munu taka gildi þann 17. nóvember 2025:

  • Lágmarksverð 1.fl. mjólkur til bænda hækkar um 0,18% úr 141,13 kr./ltr í 141,39 kr./ltr.

 

Hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda er til komin vegna kostnaðarhækkana við framleiðslu mjólkur frá síðustu verðákvörðun sem byggði á verðlagi í júní 2025. Verðlagsgrundvöllur kúabús hækkar um 0,18% frá júní til september 2025.

 

Heildsöluverð á mjólk og mjólkurvörum sem nefndin verðleggur helst óbreytt skv. ákvörðun verðlagsnefndar. Heildsöluverð á ógerilsneyddri mjólk í lausu máli hækkar um 0,16%.