17 nóvember 2025

/

Innviðaráðuneytið

Taktu þátt í að einfalda regluverk og bæta þjónustu hins opinbera

{image.Description}
Golli

Innviðaráðuneytið og stofnanir þess óska eftir tillögum um hvernig megi einfalda regluverk og bæta þjónustu á vegum ráðuneytisins og stofnana þess. Allir eiga kost á því að senda inn tillögur í samráðsgátt stjórnvalda en frestur hefur verið lengdur til og með 19. janúar nk.  

Markmiðið er að bæta þjónustu hins opinbera með því að greina hvort og hvar lagðar eru óþarfar, flóknar eða óljósar byrðar á einstaklinga, fyrirtæki, sveitarfélög eða félagasamtök sem þurfa þjónustu eða leita erinda hjá ráðuneytinu eða stofnunum þess.  

Könnunin snýr að innviðaráðuneytinu sjálfu og fimm fagstofnunum þess en þær eru: Byggðastofnun, Fjarskiptastofa, Rannsóknarnefnd samgönguslysa, Samgöngustofa og Vegagerðin. 

Ábendingar geta verið af ýmsum toga og geta snúið að óþarflega íþyngjandi reglum, skorti á leiðbeiningum eða upplýsingum, þjónustu sem mættu vera stafræn. Loks má koma með tillögur að þjónustu sem vantar eða hvar bæta megi þjónustu í takt við þróun samfélagsins. 

Verkefnið er í takt við áherslur ríkisstjórnarinnar um hagræðingu innan stjórnsýslunnar og að einfalda regluverk í þágu atvinnulífs og almennings. 

Góð reynsla af ábendingum 

Innviðaráðuneytið hefur tvívegis áður lagt fram könnun af þessu tagi. Góð reynsla er af því að kalla eftir ábendingum frá almenningi og hagaðilum. Ríflega 70 ábendingar bárust í könnuninni sem framkvæmd var árið 2022 og um 50 ábendingar árið 2020. Flestar ábendinganna hafa skilað árangri með einum eða öðrum hætti, t.d. með lagabreytingum eða breytingum á regluverki, nýjum stafrænum ferlum eða öðrum umbótaverkefnum þar sem ábendingarnar eru hafðar til hliðsjónar. 

Hægt er að taka þátt í könnuninni hér að neðan eða í gegnum samráðsgátt stjórnvalda. 

Frétt var uppfærð 17. desember 2025 með nýrri tímasetningu á fresti í samráðsgátt.