17 nóvember 2025
/
Dómsmálaráðuneytið
Tvær umsóknir bárust um embætti við Endurupptökudóm
Hinn 24. október 2025 auglýsti dómsmálaráðuneytið í Lögbirtingablaði embætti dómanda og varadómanda við Endurupptökudóm laus til umsóknar. Skipað verður í embættin frá 1. febrúar 2026. Umsóknarfrestur rann út 10. nóvember síðastliðinn og eru umsækjendur eftirtaldir:
- Reimar Snæfells Pétursson lögmaður, sem sækir um embætti dómanda,
- Dr. Matthías G. Pálsson lögfræðingur, sem sækir embætti varadómanda.
Umsóknir hafa verið afhentar dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara til meðferðar.