18 nóvember 2025

/

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Farsældarráði höfuðborgarsvæðisins ýtt úr vör

{image.Description}

Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins var formlega stofnað á föstudag. Stofnun ráðsins markar mikilvægt skref í átt að samstilltu átaki sveitarfélaga og ríkisstofnana um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna.

„Mikilvægum áfanga var náð nú þegar Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins var stofnað, hið fimmta á landsvísu. Farsældarráðið hjúpar helsta þéttbýliskjarna landsins og færumst við skrefi nær í að veita börnum samþætta þjónustu án hindrana um allt land,“ segir Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra.

Á vettvangi Farsældarráðs fer fram sameiginleg stefnumótun og samráð á grundvelli farsældarlaganna með markvissu samtali og aukinni samvinnu milli þjónustuaðila ríkis og sveitarfélaga. Markmið ráðsins er að efla og samræma þjónustu við börn á höfuðborgarsvæðinu með samþættri, snemmtækri og heildstæðri nálgun.

„Þegar þjónustuaðilar vinna saman að sameiginlegum markmiðum eykst getan til að styðja börn og fjölskyldur á réttum tíma,“ segir Hanna Borg Jónsdóttir, verkefnastjóri Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins. „Samstarfið sem nú hefst byggir á traustri fagþekkingu og þeirri sannfæringu að farsæld barna sé sameiginlegt verkefni okkar allra.“

Reykjavík, Kópavogur, Hafnarfjörður, Garðabær, Mosfellsbær og Seltjarnarnes eru aðilar að ráðinu, auk lykilþjónustuaðila á höfuborgarsvæðinu, það er Heilsugæslunnar, Lögreglunnar, framhaldsskólanna og íþróttahreyfingarinnar.

Farsældarráðin á landinu byggja á samningi mennta- og barnamálaráðuneytisins við sjö landshlutasamtök sveitarfélaga sem undirritaður var í október 2024. Með samningnum skuldbundu öll sveitarfélög landsins sig til að hefja innleiðingu 5. greinar laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.

Hansína Þóra Gunnarsdóttir, fulltrúi íþróttahreyfingarinnar á höfuðborgarsvæðinu, Valdimar Víðisson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Sigríður Dóra Magnúsdóttir, forstjóri Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu, Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar, Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri, Hanna Borg Jónsdóttir, verkefnastjóri farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins, Þorbjörg Gísladóttir, sveitarstjóri Kjósarhrepps, Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, Helga Sigríður Þórsdóttir, rektor MS og fulltrúi framhaldsskólanna á höfuðborgarsvæðinu og María Káradóttir, staðgengill lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu við undirritun stofnsamninga í Garðaholti, Garðabæ.