18 nóvember 2025

/

Utanríkisráðuneytið

Samkomulag undirritað við Búlgaríu vegna Uppbyggingarsjóðs EES

{image.Description}
Fjármálaráðuneyti Búlgaríu.
Friðrik Jónsson, sendiherra Íslands gagnvart Búlgaríu, Hilde Svartdal Lunde, sendiherra Noregs gagnvart Búlgaríu og Tomislav Donchev, aðstoðarforsætisráðherra Búlgaríu voru að vonum kampakát eftir að hafa undirritað hið nýja samkomulag.

Friðrik Jónsson, sendiherra Íslands gagnvart Búlgaríu, undirritaði í dag samkomulag um nýtt framkvæmdatímabil Uppbyggingarsjóðs EES 2021–2028 milli Íslands, Liechtenstein og Noregs annars vegar og Búlgaríu hins vegar.

Nú hefst undirbúningur úthlutana úr sjóðnum í Búlgaríu á nýju tímabili 2021–2028. Markmið Uppbyggingarsjóðsins er að stuðla að félagslegri og efnahagslegri samheldni innan Evrópu og styrkja tvíhliða tengsl gjafríkjanna, þ.e. Íslands, Liechtenstein og Noregs, við þau fimmtán Evrópusambandsríki sem njóta stuðnings úr sjóðnum.

Rannís mun gegna hlutverki sérstaks samstarfsaðila í áætlun sjóðsins á sviði staðbundinnar þróunar (Local Development) í Búlgaríu á tímabilinu.

Samstarf Íslands og Búlgaríu innan Uppbyggingarsjóðsins byggir á traustum grunni frá fyrri sjóðstímabilum, til dæmis á sviðum jarðvarma, menntunar og  menningar.