18 nóvember 2025
/
Heilbrigðisráðuneytið
Vill auka öryggi sérhæfðra sjúkraflutninga
Alma D. Möller hefur falið Sjúkratryggingum Íslands (SÍ) að undirbúa kaup á sjúkrabíl til sérhæfðra sjúkraflutninga, á grundvelli samnings SÍ við Rauða krossinn á Íslandi (RKÍ). Slíkur bíll myndi auðvelda og auka öryggi við flutning mjög veikra sjúklinga milli gjörgæsludeilda Landspítala eða fyrir sjúkraflug, við sérhæfðan sjúkraflutning nýbura og fyrirbura og aðra sjúkraflutninga milli stofnana þar sem öryggi er best tryggt með sérhæfðum búnaði.
Áður en ráðist verður í kaupin mun SÍ vinna þarfagreiningu sem dregur fram hvaða kröfur sjúkrabíll fyrir sérhæfða sjúkraflutninga þarf að uppfylla svo hann þjóni sem best þeim flutningum sem honum er ætlað að sinna. Þarfagreiningin verður unnin í samráði við helstu hagaðila, s.s. gjörgæsluráð Landspítala (LSH), ECMO teymið (teymi sem annast sjúklinga sem þurfa lífsbjargandi öndunar- og hjartastuðning), flutningsteymi nýbura á LSH, bráðamóttöku LSH, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, RKÍ og yfirlækni utanspítalaþjónustu.
„Þetta er mikilvægt framfaraskref sem mun auka öryggi bráðveikra sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólks sem sinnir þeim meðan á sjúkraflutningi stendur. Ég vonast til þess að unnt verði að taka bílinn í notkun strax á næsta ári“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.